top of page
Search

Viðskiptaspjall við Maríu Björk

  • Writer: FVH
    FVH
  • May 8
  • 2 min read

tekið saman af Telmu Eir, varaformanni FVH


Í kvöld fór fram síðasta Viðskiptaspjall FVH Félag viðskipta- og hagfræðinga og Vinnustofa Kjarval þetta starfsárið.




Viðmælandin var María Björk Einarsdóttir forstjóri Símans en hún tók við starfinu fyrir um ári síðan og vakti nokkra athygli að svo ung kona, tiltölulega óþekkt nafn í viðskiptalífinu, tæki við starfi forstjóra í rótgrónu skráðu félagi. Ég verð að segja að persónulega var ég mjög spennt að heyra meira um vegferð hennar í forstjórstólinn, það virtust fleiri vera þar sem salurinn var þétt setinn, og frásögnin var virkilega skemmtileg og fróðleg.


Foreldrar Maríu eru bæði kennarar og uppvaxtarárunum eyddi hún í ýmsum smábæjum víða um landið þar sem þau stunduðu kennslu en á þeim tíma þróaði hún með sér mikla aðlögunarhæfni.


Eftir menntaskóla valdi hún að fara í fjármálatengda verkfræði, sem var kannski ekki alveg rökréttasta valið árið 2008 beint eftir bankahrun, en sú menntun skilaði henni starfi hjá GAMMA sem síðan leiddi af sér að hún var orðin framkvæmdastjóri ÖLMU leigufélags aðeins 25 ára gömul. Þó viðlíka leigufélög væru mjög þekkt víðsvegar um heiminn var um nýjung að ræða á Íslandi og starfinu fylgdu allskonar áskoranir og var starfsemin oft gagnrýnd, þá kom áður nefnd aðlögunarhæfni sér vel.


Tvö afdrifarík símtöl skiluðu henni svo stöðu fjármálastjóra Eimskipa og síðan seinna forstjórastöðu hjá Símaum. Í hvorugt skiptið var hún að leita að vinnu en var klukkuð af aðilum sem þekktu til fyrri starfa hennar, sem sýnir hversu mikilvægt það getur verið að standa sig vel snemma á ferlinum og vera óhrædd við að takast á við allskonar verkefni.


Fyrstu vikurnar hjá Símanum sat María ekki á fundum heldur átti hún í samtölum við samstarfsfólk sitt víðsvegar um fyrirtækið- aðeins tveimur vikum eftir að hún tók við var nýtt skipurit kynnt enda segist hún ekki vera hrædd við breytingar og sé tilbúin að gera þær sé ákall um það.


Það er ljóst af samtalinu að fjarskiptamarkaðurinn er á flugi og verður virkilega spennandi að fylgjast með þróun og breytingum þar næstu mánuði. Á meðan á klukkkutíma spjallinu stóð var til að mynda birt uppgjör Sýnar og tilkynnt að forstjóri Nova væri að láta af störfum.



Það hefur verið virkilega áhugavert og fræðandi að hlusta á alla viðmælendur Viðskiptaspjallsins í vetur og vert að þakka Vinnustofu Kjarval fyrir gjöfult samstarf og þá sérstaklega Hrannar Pétursson fyrir frábæran undirbúning ásamt beittum og skemmtilegum spurningar til viðmælanda. Við höldum síðan ótrauð áfram næsta starfsár sem hefst í haust.




 
 
 

Comments


bottom of page