top of page
DSC_3563_pp.jpg

Samþykktir FVH

1. gr. 

Félagið heitir ,,Félag viðskipta- og hagfræðinga“, skammstafað FVH og hefur aðsetur í Reykjavík. 
 

2. gr. 

Félag viðskipta- og hagfræðinga er fagfélag háskólamenntaðs fólks á sviði viðskipta- og hagfræði á Íslandi. Félagið er einnig opið og aðgengilegt öllum þeim sem deila áhuga á fræðunum. 

Hlutverk félagsins er: 

  • Stuðla að því að félagsmenn njóti fræðslu og endurmenntunar í viðskipta- og hagfræði. 

  • Fjalla um málefni og rannsóknir í viðskipta- og hagfræði með hlutlægum hætti. 

  • Kynna menntun félagsmanna og efla ímynd þeirra. 

  • Veita félagsmönnum hagnýtar upplýsingar um málefni sem snerta kjör þeirra og starfsframa. 

  • Efla kynni og tengsl félagsmanna. 
     

3.gr. 

Félagsmaður getur hver sá orðið sem lokið hefur burtfararprófi frá viðurkenndum háskóla í viðskipta- eða hagfræði eða hefur áhuga á fræðunum. 

4. gr. 

Stjórn félagsins getur kjörið heiðursfélaga einstaklinga, sem leyst hafa af hendi mikilsverð störf á sviði viðskipta- eða hagfræði eða unnið sérlega mikil störf fyrir félagið. 

5. gr. 

  • Stjórn félagsins getur vikið einstaklingi úr félaginu, ef henni þykja efni standa til, en viðkomandi getur borið mál sitt undir almennan félagsfund. 

 

6. gr. 

6.1. Aðalfundur hefur æðsta vald í málefnum félagsins. Skal hann haldinn ekki síðar en í maí ár hvert. Formaður getur samþykkt frestun á aðalfundi beri svo við. 

6.2. Aðalfund skal boða skriflega með bréfi eða tölvupósti með sjö daga fyrirvara hið skemmsta og auglýsa jafnframt á samfélagsmiðlum, í blöðum eða með öðrum opinberum hætti. Aðalfundur er lögmætur sé löglega til hans boðað og ræður afl atkvæða úrslitum mála nema annars sé getið í samþykktum þessum. Atkvæðisrétt hafa skuldlausir félagsmenn sem sitja aðalfund. 

6.3. Einstaklingar sem gefa kost á sér til stjórnarsetu hjá félaginu þurfa að uppfylla skilyrði sem koma fram í 3. gr. samþykktanna og skila ferilskrá og upplýsingum um framboð sitt til framkvæmdastjóra félagsins eigi síðar en fjórum dögum fyrir aðalfund. 

7. gr. 

Þessi mál skulu tekin fyrir á aðalfundi: 

  1. Skýrsla um störf félagsins á liðnu starfsári. 

  2. Reikningsskil. 

  3. Breytingar á samþykktum. 

  4. Kosning stjórnar. 

  5. Kosning endurskoðanda. 

  6. Önnur mál. 

 

8. gr. 

8.1. Stjórn félagsins skal skipuð tíu einstaklingum. Stjórnarmenn skal kjörinn skulu kjörnir sérstaklega með bundinni kosningu á aðalfundi til tveggja ára í senn. Séu fleiri en tíu í framboði skal fjöldi atkvæða ráða því hverjir setjast í stjórn. 

8.2. Stjórn er heimilt að skipa varamenn í stjórn sem skulu taka sæti ef til forfalla kemur. 

Kosningar skulu vera skriflegar sé þess óskað. Eigi má kjósa sama mann til formennsku nema tvö kjörtímabil í senn. 

8.3. Stjórn kýs formann, varaformann og gjaldkera úr hópi stjórnarmanna á aðalfundi félagsins eða á fyrsta stjórnarfundi eftir aðalfund og skiptir að öðru leyti með sér verkum. Eigi má kjósa sama mann til formennsku nema tvö kjörtímabil í senn. 

 

9.gr. 

9.1. Stjórn félagsins ræður málefnum þess með þeim takmörkunum, sem samþykktir þessar setja. Hún tekur ákvarðanir um starfsemi félagsins og ber ábyrgð á fjárreiðum þess. 

9.2. Stjórn mótar stefnu félagsins í samræmi við tilgang þess og skal tryggja að starfsemi þess sé jafnan í lögmætu horfi. Stjórn er einnig heimilt að útvista starfseminni í heild eða hluta til þess bærra aðila. Stjórn félagsins er heimilt að skipa nefndir fagráð og deildir um einstaka hluta starfseminnar. 

9.3. Stjórn skuldbindur félagið gagnvart öðrum aðilum og er undirskrift formanns, gjaldkera eða framkvæmdastjóra nægileg til þess. 

9.4. Stjórn getur ráðið framkvæmdastjóra og ákveður starfskjör hans. 

9.5. Stjórn félagsins ákveður félagsgjöld hverju sinni í upphafi starfsárs. 

9.6. Stjórnin er ákvörðunarbær þegar minnst helmingur stjórnarmanna er mættur á fund og fundur hefur verið boðaður í samræmi við starfsreglur stjórnar. Einfaldur meirihluti atkvæða ræður úrslitum mála á stjórnarfundi. Ef atkvæði falla jöfn ræður atkvæði formanns úrslitum. 

9.7. Það sem ákveðið er á stjórnarfundum skal ritað í fundargerð félagsins og gert aðgengilegt stjórnarmönnum eins fljótt og auðið er. 

 

10. gr 

Framkvæmdastjóri hefur með höndum stjórn á daglegum rekstri félagsins og skal í þeim efnum fara eftir stefnu og fyrirmælum sem stjórn hefur gefið. Sé framkvæmdastjóri ekki starfandi hjá félaginu sinnir formaður hlutverki hans 

 

11. gr. 

Reikningsár félagsins er frá 1. apríl til 31. mars hvert ár. 

12. gr. 

Samþykktum þessum má breyta á aðalfundi félagsins og skal í fundarboði geta þeirra breytinga sem bera á upp. Til þess að breytingar á samþykktum nái fram að ganga þarf 2/3 greiddra atkvæða. 

bottom of page