Telma áfram formaður Félags viðskipta- og hagfræðinga
Ný stjórn Félags viðskipta- og hagfræðinga (FVH) hefur tekið til starfa en hún var kosin á aðalfundi félagsins í vor. Telma Eir Aðalsteinsdóttir er áfram formaður stjórnar, Jóhann Sveinn Friðleifsson er varaformaður og Atli Stefán Yngvason er gjaldkeri stjórnar.
Auk þeirra skipa stjórn félagsins starfsárið 2026-2027: Anna Gréta Hafsteinsdóttir, Birgitta Maren Einarsdóttir, Elka Ósk Hrólfsdóttir, Hlynur Magnússon, Tryggvi Jarl Sveinsson.
Öll stjórnin heldur áfram

Engar breytingar urðu á stjórn á milli starfsára eftir miklar mannabreytingar frá árinu áður.
FVH er fagfélag háskólamenntaðra viðskipta- og hagfræðinga auk áhugafólks um fræðin. Hlutverk FVH er að vekja athygli á málefnum í íslensku viðskipta- og efnahagslífi með reglulegum fræðsluerindum, stuðla að endurmenntun og eflingu tengslanets. Félagið stendur einnig fyrir kjarakönnun sem er aðgengileg félagsfólki og var síðast framkvæmd í febrúar 2026.





Comments