top of page
Search

Viðskiptaspjall við Lindex hjónin

  • Writer: FVH
    FVH
  • Mar 27
  • 2 min read

-skrifað af Telmu Eir, varaformanni FVH


Fimmta viðskiptaspjall FVH Félag viðskipta- og hagfræðinga og Vinnustofa Kjarval fór fram í gær- jafnframt lengsta viðskiptaspjall sem farið hefur fram- slagaði í 2 klukkutíma enda margt að fara yfir og fjöldi spurninga frá gestum.




Viðmælendurnir voru Lóa Dagbjört Kristjánsdóttir og Albert Þór Eiríksson, oftast þekkt sem Lindex hjónin (sem hafa þó ekki enn komið því inn í dagskrána að gifta sig en það stendur til bóta).


Þau hafa opnað hverja verslunina á fætur annarri og setja met þegar kemur að fjölda sem mæta í hvert skipti- en hvernig byrjaði þetta ævintýri?


Lóu langaði alltaf að verða búðarkona og Albert ólst upp með saumavélahljóð í kringum sig svo það var kannski ekkert alveg úr vegi að þau færu í rekstur fataverslana en voru þó bæði búin að prófa ýmislegt annað áður en það ævintýri hófst. Þegar þau voru búsett í Svíþjóð uppgvötaði Lóa Lindex, stofnaði Facebook síðu undir merkinu Emil&Lína og byrjaði að selja varning frá versluninni til Íslands. Sumarið eftir fór hún síðan í hringferð um landið með heimakynningar, Herbert Guðmundsson style, til að selja og kynna vöruna en ekki síður til að gera rannsókn á Íslenska markaðinum og greina þarfir hans.


Það varð svo úr að þau sóttu um að reka Lindex verslun á Íslandi og útbjó Albert kynningu (en samkvæmt Lóu er það algerlega hans styrkleiki) sem þau sendu út. Kynningin varð til þess að forsvarsmenn Lindex vildu hitta þau og svo fór boltinn að rúlla og fyrsta Lindex verlsunin opnaði á Íslandi árið 2011. Aðspurð um innihald kynningarinnar þ.e. hvort hún hefði innihaldið upplýsingar um að 2009-2010 hefðu fæðst stærstu árgangar barna á Íslandi, stjarnfræðilegar tölur um verslun Íslendinga í H&M (sem þá var ekki á Íslandi) eða aðarar tölur um markaðinn þá var svarið: nei ekkert slíkt hafi komið þar fram. Þau hafi í raun bara selt sig og hvað þau gátu gert- sem greinilega svínvirkaði.


Í dag reka þau fjölda Lindex og Gina Triocot verslana um allt land ásamt því að hafa nýverið tryggt sér sérleyfi fyrir spænska barnafatamerkið Mayoral og hafa svo nýverið endurvakið vörumerkið Emil&Lína en undir því merki eru hönnuð og framleidd íslensk barnaföt og einnig opnuðu þau verslun á Laugarveginum á dögunum.


 
 
 

Comments


bottom of page