Opnað fyrir tilnefningar til Þekkingarverðlauna FVH 2026
- FVH

- 1 hour ago
- 1 min read

Við val á Þekkingarfyrirtæki ársins verður horft til fyrirtækja sem hafa með árangursríkum hætti bætt við tekjustrauma fyrirtækis á síðustu árum í formi ytri vaxtar eða með útvíkkun á rekstri utan kjarnastarfsemi.
Þá verður litið sérstaklega til fyrirtækja þar sem mælanlegur árangur hefur náðst í rekstrarhagræðingu, til að mynda með samnýtingu innviða og mannauðs. Einnig verður horft til þess hvort fyrirtæki hafi sett fram skýra vaxtarstefnu og með markvissum hætti skilað ávinningi af sameiningum og samþættingu til viðskiptavina.
Einnig er leitast eftir tilnefningum fyrir viðskiptafræðing eða hagfræðing ársins sem sýnt hefur faglega seiglu og verið leiðtogi á sínu sviði.
Við hvetjum þig til að senda inn tilnefningu ef þú þekkir til fyrirtækis eða einstaklings sem þú telur eiga verðlaunin skilið.
Frestur til að senda inn tilnefningu er út 1. apríl 2026.




Comments