top of page

Oculis þekkingarfyrirtæki ársins 2023

Writer's picture: FVHFVH

Updated: Aug 28, 2023

Oculis hlýtur Þekkingarverðlaun FVH 2023 en í ár voru verðlaunin veitt fyrir nýsköpun byggða á íslensku hugviti í þágu bættra lífsgæða og lausna á samfélagslegum áskorunum. Félag viðskipta- og hagfræðinga veitir verðlunin en það var Forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson sem afhenti verðlaunin.




Oculis er augnlyfjaþróunarfélag sem stofnað var árið 2003 og byggir á uppfinningu þeirra Einars Stefánssonar prófessor emeritus í augnlækningum og Þorsteins Loftssonar prófessor emeritus í lyfjafræði. Fyrirtækið hefur þróað byltingarkennda tækni, OPTIREACH, við meðhöndlun augnsjúkdóma í afturhluta augans með augndropum sem auka leysanleika augnlyfja og gefa lengri virkni. Nú þegar hefur verið sýnt fram á virkni augndropanna fyrir sjónhimnubjúg af völdum sykursýkis í klínískum rannsóknum. Samhliða vinnur félagið að þróun líftækniaugndropa ásamt því að vera með taugaverndandi lyf á frumstigi fyrir augun. Oculis hefur náð eftirtektarverðum árangri og er því vel að því komið að vera Þekkingarfyrirtæki ársins 2023 segir m.a. í mati dómnefndar.


Auk Oculis voru það Controlant, Kerecis, Nox Medical, Orf Líftækni og Sidekick Health sem hlutu tilnefningar til verðlaunanna og var Kerecis veitt Þekkingarviðurkenning ársins 2023.





Kerecis var stofnað árið 2009 og er í dag brautryðjandi á alþjóðlegum markaði með lífræðileg sárameðhöndlunarefni. Fyrirtækið notar á sjálfbæran máta aukaafurðir, svo sem þorskroð og fitusýrur, sem falla til við framleiðslu á sjávarafurðum til að mæta læknisfræðilegum áskorunum sem hingað til hafa verið óleystar. Vegferð Kerecis frá stofnun hefur verið aðdáunarverð og var fyrirtækið m.a. valið Þekkingarfyrirtæki ársins 2015 og skipaði fyrr á árinu 2023 sæti á lista Financial Times yfir þau fyrirtæki í Evrópu sem vaxa hraðast. Tekjur Kerecis árið 2022 námu um 10% af útflutningsverðmætum íslenska þorskaflans segir m.a. í mati dómnefndar.


Félag viðskipta- og hagfræðinga óskar Oculis og Kerecis innilega til hamingju með þessar verðugu viðurkenningar.

34 views0 comments

Recent Posts

See All

Comments


bottom of page