Kjarakönnun FVH 2026 er komin í loftið!
- FVH

- Feb 24
- 1 min read

Vilt þú vita hvaða laun þú átt að biðja um í launaviðtali?
Félag viðskipta- og hagfræðinga hefur framkvæmt kjarakannanir reglulega frá 1997. Tilgangur kjarakönnunar er að gefa félagsmönnum FVH ítarlegar upplýsingar um kjör, áhrif menntunar og annarra þátta í starfsumhverfi þeirra.
Við óskum eftir þátttöku viðskipta- og hagfræðinga til að gefa okkur greinagóðar upplýsingar um stöðu þeirra á vinnumarkaðninum.
Það tekur um 2 mínútúr að svara könnuninni og munu allir þátttakendur fara í pott þar sem 2 þátttakendur verða dregnir út og hljóta 20.000 kr bankakort í vinning.
Prósent lætur aldrei af hendi persónugreinanlegar upplýsingar þátttakenda. Farið verður með öll svör sem trúnaðarmál. Við störfum eftir ströngum siðareglum ESOMAR sem settar eru af alþjóðasamtökum markaðsrannsóknarfyrirtækja og er sérstaklega unnið eftir lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Við hvetjum þig til að kynna þér rétt þinn og hvernig Prósent meðhöndlar og verndar persónuupplýsingar þátttakenda með því að lesa persónuverndarstefnu Prósent.
Ef þú hefur einhverjar spurningar um könnunina er þér velkomið að hafa samband við Prósent með því að senda tölvupóst á rannsoknir@prosent.is eða hringja í síma 546 1008.




Comments