top of page
Search

Hvar liggja tækifærin? Fjárfestingar í breyttri heimsmynd

  • Writer: FVH
    FVH
  • Jan 19
  • 1 min read

Fyrsti viðburður FVH  árið 2026 var haldinn sl. miðvikudag fyrir húsfylli á Vinnustofu Kjarvals. Þar buðum við þeim Heiðari Guðjónssyni, fjárfesti og Guðlaugi Gíslasyni, frá Visku sjóðum, í spjall um fjárfestingarumhverfið í núverandi tíð. Tryggvi Jarl Sveinsson, stjórnarmaður FVH stýrði fundinum af glæsibrag og lagði fyrir þá spurninguna "Hvar liggja tækifærin? Fjárfestingar í breyttri heimsmynd".



Gulli reið á vaðið með yfirferð yfir þróun eignaflokka síðustu ár bæði hér á landi og erlendis og hlutverk málma og rafmynta í breyttri heimsmynd. Skipting eignasafna á milli skuldabréfa og hlutabréfa. Heiðar fór á umbúðarlausan hátt yfir fjárfestingamarkaðinn hérlendis og er óhætt að segja að báðir hafi ekkert skilið eftir í sinni greiningu á markaðnum.


Að lokum bar Tryggvi undir þá skemmtilegar hraðaspurningar þar sem var skotið var á þróun einstakra hlutabréfa, verðmæti gulls og rafmynta og fleira sem aðeins viðstaddir gátu tekið með sér í fararteskinu heim um kvöldið.


Félagið þakkar viðstöddum fyrir komuna og viðmælendum fyrir áhugaverða og skemmtilega yfirferð.



 
 
 

Comments


bottom of page