Bjarni Benediktsson í viðskiptaspjalli
- FVH

- May 8
- 2 min read
Í gær fór fram síðasta Viðskiptaspjall starfsársins í samstarfi FVH Félag viðskipta- og hagfræðinga, Viðskiptaráð - Iceland Chamber of Commerce og Vinnustofa Kjarval en viðmælandinn að þessu sinni var Bjarni Benediktsson framkvæmdastjóri Samtök atvinnulífsins og einn reyndasti stjórnmálamaður Íslands.

Bjarni ólst upp í Garðabænum og segir að íþróttaiðkun hafi haft mjög mótandi áhrif á æsku hans og hann sjálfann til framtíðar. Stjarnan var á þessum tíma nýstofnað félag og þar voru engir bikarar komnir í hús en Bjarna og félögum tókst að vinna fyrsta Íslandsmeistaratitil félagsins og bæta úr því.
Leiðin lá í MR eftir grunnskóla þar sem hann kynntist mikið af samferðamönnum dagsins í dag. Hann minnist þess sem dæmi að hafa séð Birgir Armannsson, samflokks mann sinn, einna fyrst þegar þeir voru í þröngum húsakosti íþróttaklefa skólans þar sem bekkir skólans mættust þegar þeir fóru í og úr íþróttatímum. Meðan aðrir bogruðust við að koma sér í og úr í íþróttaklefanum stóð Birgir í miðju hópsins að mundast við að binda á sig þverslaufu til að mæta prúðbúinn aftur í tíma.
Hann kynntist Þóru konunni sinni snemma og þau eignuðust sitt fyrsta barn fljótlega. Þau létu það þó ekki stöðva sig í að fara erlendis og sækja meira nám. Með ungabarn héldu þau utan til náms án þess að vera komin með húsnæði en það reddaðist, eins og oft vill vera, og talar Bjarni um að námsárin tvö í Þýskalandi og svo í Miami hafi verið einn besti tími sem hann man eftir.
Að sjálfsögðu var síðan farið yfir nýtt starf hjá SA, stöðu vinnumarkaðarins, pólitíska ferilinn og sveitastjórnarkosningar framundan.
Stjórn þakkar góðar viðtækur og mætingu á Viðskiptaspjöll vetursins.
Myndir: Atli Stefán Yngvason
Tekið saman af Telmu Eir, formanni FVH










Comments