Andri Þór Guðmundsson í Viðskiptaspjalli FVH
- FVH

- 1 day ago
- 2 min read
Í síðustu viku var það Andri Þór Gudmundsson viðmælandi viðskiptaspjalls FVH Félag viðskipta- og hagfræðinga, Viðskiptaráð - Iceland Chamber of Commerce og Vinnustofa Kjarval.
Spjallið var vel heppnað og þakkar félagið viðstöddum fyrir komuna og Andra fyrir þátttökuna.
Telma Eir, formaður félagsins skrifaði eftirfarandi texta um spjallið.

Andri ólst upp í Fossvoginum en spilaði samt fótbolta með Val, meðan hann spilaði með stórstjörnum eins og Guðna Bergs var hann sjálfur frekar lélegur að eigin sögn og oftast í c-liðinu. Hann mætti fyrstu vikuna sína í Versló sem pönkari en fann strax að það passaði ekki alveg og skipti um kúrs. Hann er mikill félagsmaður í grunninn en hefur þurft að þjálfa upp í sér extrovertinn þar sem hann er í raun introvert í grunninn, þannig ögraði hann sjálfum sér og tók þátt í ræðukeppnum og stundað félagslífið af krafti, snéri styrkleikum í veikleika.
Undirskrift Andra ber þessa dagana engann starfstitil enda breytingar framundan hjá honum þar sem hann býður sig fram sem stjórnarformann móðurfélags Beru, en eitt af dótturfélögum Beru er Ölgerðinn sem Andri hefur stýrt í nú rúm 20 ár.
Þegar hann er spurður afhverju Bera og hvort það sé eitthvað tískufyrirbrigði að stofna móðurfélög segir hann svo ekki vera. Það sé í raun gríðarlega praktískt rekstrarlega að vera með sjálfstæðan admin hluta þar sem hægt sé að nýta samlegðaráhrif og þekkingu á meðan að dótturfélögin nái þá frekar að fókusa á sína kjarnastarfsemi og stunda sjálfstæða nýsköpun svo eitthvað sé nefnt.

Við hjá FVH erum þessu hjartanlega sammála enda snýst þema Þekkingarverðluna FVH eimitt um að verðlauna fyrirtækja sem hafa með árangursríkum hætti bætt við tekjustrauma fyrirtækis á síðustu árum í formi ytri vaxtar eða með útvíkkun á rekstri utan kjarnastarfsemi. Ert þú ekki örugglega búin/nn að senda inn tilnefningu?




Comments