top of page
Search

Björn Brynjúlfur hagfræðingur ársins

  • Writer: FVH
    FVH
  • May 26
  • 1 min read

Félag viðskipta- og hagfræðinga veitir árlega einum einstaklingi nafnbótina viðskipta- eða hagfræðingur ársins fyrir faglegan metnað, framúrskarandi árangur og leiðtogahæfni á sínu sviði.



Björn Brynjúlfur er hagfræðingur að mennt með meistaragráðu frá University of Oxford. Á síðustu árum hefur hann stofnað og rekið fjölmörg fyrirtæki á sviði hugbúnaðar og nýsköpunar og hefur frá árinu 2024 starfað sem framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs.

 

Meðal þeirra fyrirtækja sem Björn hefur stofnað eru Frami, vefskóli sem gerir fólki kleift að læra af sérfræðingum í fremstu röð á sínu sviði, Elvo, stafrænt þjónustuborð fyrir fyrirtæki, og Moodup, hugbúnaðarfyrirtæki sem mælir starfsánægju á vinnustöðum. Árið 2025 keypti Skyggnir allt hlutafé Moodup.

 

Björn Brynjúlfur hefur haft markverð áhrif á íslenska efnahags- og samfélagsumræðu frá því að hann tók við starfi framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs. Undir hans stjórn hefur Viðskiptaráð tekið virkan þátt í umræðu um margvísleg málefni og lagt fram fjölda tillagna að umbótum sem miða að því að bæta efnahag og lífskjör á Íslandi.

 

Það er mat dómnefndar að Björn hafi sýnt einstaka þrautseigju sem frumkvöðull á sviði hugbúnaðar og nýsköpunar og að innkoma hans í Viðskiptaráð hafi haft áhrif á íslenska þjóðfélagsumræðu með áhrifaríkum og eftirtektarverðum hætti.

 

„Ég er afar þakklátur fyrir þessa viðurkenningu. Hagfræði snýst í grunninn um að skilja samfélagið betur og finna leiðir til að bæta það. Það hefur verið mér mikill heiður að fá að starfa bæði að nýsköpun og taka þátt í opinberri umræðu um efnahags- og samfélagsmál á Íslandi,“ segir Björn Brynjúlfur Björnsson.

Stjórn FVH óskar Birni Brynjúlfi innilega til hamingju með titilinn hagfræðingur ársins 2026.



 
 
 

Comments


bottom of page