Viðskiptaspjall við Bjarna Benediktsson
fim., 07. maí
|Vinnustofa Kjarval
einn reynslumesti leiðtogi landsins


Time & Location
07. maí 2026, 19:00 – 23:00
Vinnustofa Kjarval, Austurstræti 10a, 101 Reykjavík, Iceland
About the event
Bjarni Benediktsson mætir í Viðskiptaspjalli FVH, Vinnustofu Kjarvals og Viðskiptaráð Íslands
fimmtudaginn 7. maí kl. 17:00 – Vinnustofa Kjarvals
Eftir áratugalangan og áhrifamikinn stjórnmálaferil hefur Bjarni Benediktsson snúið sér að nýjum verkefnum á vettvangi atvinnulífsins sem framkvæmdastjóri Samtök atvinnulífsins. Þar nýtir hann víðtæka reynslu úr bæði íslensku og alþjóðlegu umhverfi til að takast á við nýjar áskoranir og móta framtíðarsýn fyrir íslenskt efnahagslíf.
Í spjallinu mun Bjarni deila innsýn úr ferli sínum – allt frá helstu áskorunum og lærdómi til þeirra tækifæra sem hann sér framundan í atvinnulífinu. Einnig verður komið inn á málefni líðandi stundar, þar á meðal komandi sveitarstjórnarkosningar og mat hans á stöðunni út frá víðtækri pólitískri reynslu.
Hvernig hefur reynsla úr stjórnmálum nýst í leiðtogahlutverki í atvinnulífinu? Hvaða áskoranir og tækifæri bíða íslensks atvinnulífs á næstu árum? Og hvernig horfir staðan við í aðdraganda kosninga?
