Viðskiptaspjall við Andra Þór Guðmundsson
þri., 24. mar.
|Reykjavík
Formann Viðskiptaráðs og fráfarandi forstjóra Ölgerðarninnar


Time & Location
24. mar. 2026, 17:00 – 19:00
Reykjavík, Austurstræti 10a, 101 Reykjavík, Iceland
About the event
Andri mætir í Viðskiptaspjall Kjarval, FVH og Viðskiptaráðs
þriðjudaginn 24. mars kl. 17:00 - Vinnustofu Kjarvals
Eftir 22 ár í forstjórastóli Ölgerðarinnar stendur Andri Þór Guðmundsson, á nýjum tímamótum. Undanfarin ár hefur hann leitt eitt rótgrónasta fyrirtæki landsins í gegnum mikinn vöxt og þróun – og nú eru fram undan spennandi breytingar í samstæðunni.
Nýtt móðurfélag, Bera hf., tekur við sem regnhlíf yfir starfsemi Ölgerðarinnar og tengdra félaga. Andri hyggst þar færa sig í nýtt hlutverk og sækist eftir að leiða félagið sem stjórnarformaður á næsta kafla í uppbyggingu samstæðunnar.
Hvað liggur að baki þessum breytingum? Hvernig sér hann þróun íslensks atvinnulífs á næstu árum? Og hvaða tækifæri felast í nýsköpun, vöruþróun og alþjóðlegu samstarfi?
