Tilnefningar til Þekkingarverðlauna FVH 2024
þri., 30. apr.
|Frestur til tilnefninga er út 30. apríl
Opnað hefur verið fyrir tilnefningar fyrir þekkingarfyrirtæki ársins og viðskipta-/eða hagfræðing ársins
Time & Location
30. apr. 2024, 22:00 – 23:50
Frestur til tilnefninga er út 30. apríl
About the event
Opnað hefur verið fyrir tilnefningar til Þekkingarverðlauna FVH 2024.
Við val á Þekkingarfyrirtæki ársins verður horft til fyrirtækja sem hafa þróað eða innleitt tækinýjungar og/eða gervigreind með eftirtektarverðum hætti í sínum rekstri. Þá verður litið sérstaklega til fyrirtækja þar sem mælanlegur árangur hefur náðst með tækninýjungunni sem hefur haft jákvæð áhrif á rekstur fyrirtækisins og/eða samfélagið í heild sinni.
Auk þess verða veitt verðlaun fyrir viðskipta- eða hagfræðing ársins sem sýnt hefur faglega seiglu og verið leiðtogi á sínu sviði.
Við hvetjum þig til að senda inn tilnefningu ef þú þekkir til fyrirtækis eða einstaklings sem þú telur eiga verðlaun skilið.