Hvar liggja tækifærin? Fjárfestingar í breyttri heimsmynd
mið., 14. jan.
|Reykjavík


Time & Location
14. jan. 2026, 17:00 – 19:00
Reykjavík, Austurstræti 10a, 101 Reykjavík, Iceland
About the event
Vinnustofa Kjarvals, innri salur 5. hæð
Miðvikudagurinn 14. janúar klukkan 17:00 - Skráning er nauðsynleg og fer fram hér fyrir neðan.
Alþjóðlegir fjármálamarkaðir hafa tekið miklum breytingum á síðustu árum. Verðbólga, aukið peningamagn, þróun eignaflokka og hlutverk harðra eigna hafa sett hefðbundnar fjárfestingarforsendur undir pressu. Á sama tíma hafa tækifæri skapast fyrir þá sem skilja hvar nýjar áherslur kunna að liggja.
Við bjóðum þér að taka þátt í spennandi spjalli þar sem leitast verður eftir að svara spurningunni Hvar liggja tækifærin? - Fjárfestingar í breyttri heimsmynd. Við fáum þá Guðlaug Steinarr hjá Visku sjóðum og Heiðar Guðjónsson, fjárfestir, til að fara yfir stöðuna með okkur.
Guðlaugur Steinarr fer yfir þróun eignaflokka síðustu ára, breyttar markaðshorfur, hlutverk harðra eigna á borð við málma og Bitcoin, endurskoðun hefðbundinnar 60/40 eignaskiptingar og sýn Visku á tækifærin framundan.
Heiðar Guðjónsson, fjárfestir, fjallar um tækifæri tengd orku og tækni, og hvað breytt heimsmynd þýðir fyrir Ísland og einstaklinga…
