Er íslenskur hlutabréfamarkaður ónýtur?
mið., 04. nóv.
|Vinnustofa Kjarval
FVH fær góða gesti til að ræða stöðuna á íslenskum hlutabréfamarkaði.


Tími og staðsetning
04. nóv. 2026, 17:00 – 18:00
Vinnustofa Kjarval, Austurstræti 10a, 101 Reykjavík, Iceland
Um viðburðinn
Velta á innlendum hlutabréfamarkaði hefur ekki verið minni frá árinu 2020. Úrvalsvísitalan hefur lækkað um tæp 14% á árinu á meðan aðrir norrænir markaðir hafa hækkað. Lífeyrissjóðir eru ráðandi í eignarhaldi, fáir einkafjárfestar bera markaðinn uppi og tæpir 2.000 milljarðar króna liggja á innlánum heimila.
Er þetta tímabundin lægð í háu vaxtastigi eða kerfislægur vandi? Hver á að kaupa íslensk hlutabréf á næstu árum og hvað þarf að breytast?
FVH fær til sín fólk sem horfir á markaðinn frá ólíkum hliðum:
● Andrea Olsen, framkvæmdastjóri Frigus
● Helgi Frímannsson, greining í verðbréfamiðlun Landsbankans
● Ólafur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Birtu lífeyrissjóðs
