top of page

Ásdís Kristjánsdóttir hagfræðingur í Viðskiptaspjallinu

mið., 25. nóv.

|

Vinnustofa Kjarval

Næsti gestur í Viðskiptaspjalli FVH, Kjarval og Viðskiptaráðs er Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs og hagfræðingur ársins 2025.

Ásdís Kristjánsdóttir hagfræðingur í Viðskiptaspjallinu
Ásdís Kristjánsdóttir hagfræðingur í Viðskiptaspjallinu

Tími og staðsetning

25. nóv. 2026, 17:00 – 18:30

Vinnustofa Kjarval, Austurstræti 10a, 101 Reykjavík, Iceland

Um viðburðinn

Næsti gestur í Viðskiptaspjalli FVH, Kjarval og Viðskiptaráðs er Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs og hagfræðingur ársins 2025. Ásdís hefur unnið að umfangsmiklum breytingum sem bæjarstjóri undanfarin ár. Má þar nefna róttækar aðgerðir á skipulagi leikskólamála, hagræðingu í rekstri bæjarins, lækkun fasteignaskatta og nú síðast sýnt frumkvæði í baráttu við verðbólgu með þaki á gjaldskrárhækkanir sem aðrir aðilar hafa fylgt í kjölfarið.


Ásdís hefur víðtæka reynslu úr íslensku atvinnulífi, meðal annars hjá Samtökum atvinnulífsins sem forstöðumaður efnahagssviðs og aðstoðarframkvæmdastjóri samtakanna. Þá hefur hún einnig starfað á fjármálamörkuðum, setið í stjórnum fyrirtækja og gegnt trúnaðarstörfum fyrir stjórnvöld. Hún hefur verið sýnileg í þjóðfélagsumræðu um efnahagsmál, verið rödd fyrir umbætur og lagt sitt af mörkum til skýrari stefnumótunar – jafnt fyrir opinbera aðila sem atvinnulífið í heild.


Ásdís hefur lýst sjálfri sér sem metnaðarfullri keppnismanneskju sem gangi í öll verk á þeim forsendum að leysa þurfi vandamál og yfirstíga hindranir.

Við ræðum um…


Deildu þessum viðburði

bottom of page