Styrkás Þekkingarfyrirtæki ársins
- FVH

- May 20
- 2 min read
Þekkingarverðlaun Félags viðskipta- og hagfræðinga voru afhent í 26. skiptið af Forseta Íslands, Höllu Tómasdóttur. Dómnefnd Þekkingarverðlaunanna var skipuð einstaklingum með víðtæka reynslu úr atvinnulífinu: þeim Birnu Ósk Einarsdótturi, forstjóri Húsasmiðjunnar, Magnúsi Halldórssyni, ráðgjafi og viðskiptastjóri hjá Íslandsstofu og Freyr Friðfinnsson, viðskiptastjóri hjá Samtökum iðnaðarins ásamt tveimur stjórnarmeðlimum FVH, þeim Telmu Eir Aðalsteinsdóttur, formanni FVH og Jóhanni Sveini Friðleifssyni, varformanni,

Styrkás hlaut Þekkingarverðlaun FVH 2026 en í ár voru verðlaunin veitt fyrirtæki sem hefur með árangursríkum hætti bætt við tekjustrauma fyrirtækis á síðustu árum í formi ytri vaxtar eða með útvíkkun á rekstri utan kjarnastarfsemi. Einnig var horft til þess hvort fyrirtækið hefði sett fram skýra vaxtarstefnu og með markvissum hætti skilað ávinningi af sameiningum og samþættingu til viðskiptavina.
Vaxtarstefna með skýra samfélagssýn.
Dómnefnd var einhuga um að það sem gerir vegferðina sérstaklega eftirtektarverða er að hún byggir ekki eingöngu á vexti heldur einnig á skýrri samfélagssýn. Styrkás hefur greint þá innviðaskuld sem þarf að vinna niður á Íslandi og byggt upp starfsemi sem styður við verkefni sem hafa raunveruleg áhrif á samfélagið, atvinnulíf og framtíðaruppbyggingu Íslands.
Styrkás hefur á skömmum tíma, frá stofnun 2022 þróast í öfluga samstæðu sem þjónustar fjölbreytt kjarnasvið atvinnulífsins. Með kaupum á félögum á sviði eignastýringar, umhverfis- og iðnaðarþjónustu, orku og efnavöru hefur fyrirtækið skapað fjölbreyttari og stöðugri rekstrargrunn, með minni áhættu og sterkari endurteknum tekjum.
Það var Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir sem veitti Ásmundi Tryggvasyni, forstjóri Styrkás verðlaunin. Við það tækifæri sagði Ásmundur:
„Við hjá Styrkás erum afar þakklát fyrir þann heiður að hljóta verðlaunin Þekkingarfyrirtæki ársins 2026. Styrkás setti sér það markmið í upphafi að vera leiðandi þjónustufyrirtæki með styrk til að þjónusta innviða- og atvinnuvegafjárfestingu á Íslandi. Síðan þá höfum við markvisst unnið að uppbyggingu fjögurra kjarnasviða með innri og ytri vexti, samnýtingu innviða og að samþætta reksturinn á þann hátt að það skili sér bæði í hagkvæmari rekstri og betri þjónustu við viðskiptavini. Framtíðarsýn okkar er skýr, við erum tilbúin fyrir áframhaldandi vöxt og við höfum sett stefnuna á skráningu í kauphöll Íslands á öðrum ársfjórðungi 2027. Verðlaunin eru okkur í senn staðfesting á því að við séum á réttri leið og hvatning til að setja markið enn hærra."
HD iðn og tækniþjónusta og Innnes hlutu
Þekkingarviðurkenningar FVH 2026
Félögin HD iðn- og tækniþjónusta og Innnes hlutu Þekkingarviðurkenningu FVH 2026 fyrir framúrskarandi árangur, metnaðarfulla uppbyggingu og skýra framtíðarsýn. Dómnefnd taldi fyrirtækin bæði hafa sýnt eftirtektarverða framkvæmdagetu við að byggja upp sterkari og fjölbreyttari rekstur sem skilar auknu virði fyrir viðskiptavini og samfélag.
Dómnefnd lagði sérstaka áherslu á hvernig bæði fyrirtæki hafa nýtt þekkingu, innviði og mannauð til að byggja upp sterkari og fjölbreyttari starfsemi. HD iðn- og tækniþjónusta hefur á síðustu árum umbreyst í breiðara þekkingar- og tæknifyrirtæki með þjónustu á nýjum mörkuðum, á meðan Innnes hefur styrkt stöðu sína með öflugri uppbyggingu í dreifingu og meðhöndlun ferskvara sem skilar bæði rekstrarlegum og samfélagslegum ávinningi.
Stjórn FVH óskar Styrkás innilega til hamingju með verðlaunin og fyrirtækjunum HD og Innnes innilega til hamingju með viðurkenningarnar.






































Comments