Kjarakönnun FVH aðgengileg á innri vef
- FVH

- 7 days ago
- 2 min read
Updated: 6 days ago
Í apríl kynntum við helstu niðurstöður úr nýjustu kjarakönnun FVH sem var framkvæmd dagana 6. til 19. mars. á fundinum, sem nú er hægt að nálgast upptöku af á innri vef FVH, fór Trausti Haraldsson, framkvæmdastjóri Prósent, yfir niðurstöður nýjustu kjarakönnunar viðskipta- og hagfræðinga og Thelma Kristín Kvaran, mannauðsráðgjafi og meðeigandi Intellecta fór yfir ýmis góð ráð þegar kemur að launaviðtölum, atvinnuleit, þróun í starfi og hvernig má nýta m.a. niðurstöður kjarakönnunarinnar í næsta launaviðtali. Upptaka af fundinum er aðgengileg á innri vef félagsins.
Á innri vef félagsins finnur þú einnig uppfærða launareiknivél og niðurstöðurnar í heild sinni sem voru um margt áhugaverðar. Könnunin er sú eina á Íslandi sem gerir viðskipta- og hagfræðingum kleift að bera laun sín saman við aðra með sambærilegt starf, aldur og menntun!
20% hækkun á miðgildi launa mældist á milli áranna 2024-2026. Það var umtalsvert hærri hækkun en hafði mælst frá 2020 en þó má greina sambærilega hækkun á ca. 6 ára fresti síðan félagið framkvæmdi fyrst könnunina 1999.
Þeir sem höfðu verið skemur en 5 ár á vinnumarkaði eftir útskrift voru með miðgildi launa upp á 973.000 en meðaltalið var þó rúm 1.000.000. Þó nokkur breidd er því í launum hjá þessum hóp.

Bachelor gráða skilaði miðgildi launa upp á 1.185.000 kr en Mastersgráða miðgildi launa um 1.300.000.
Í könnuninni var sú nýjung að spurt var um áhrif bónusa og-/eða kaupréttarkerfi á heildarlaun starfsfólks. Einnig könnuðum við hvort að starfsfólk hefði óskað eftir launaviðtali á síðastliðnum 12 mánuðum og þá hvort það launaviðtal hefði skilað sér í launahækkunum. Í ljós kom að 70% þeirra sem höfðu farið í launaviðtal fengu launahækkun umfram kjarasamnings.
Hvetjum alla viðskipta- og hagfræðinga til að kíkja inn á innri vefinn og fá betri tilfinningu fyrir launastöðu sinni.




Comments