top of page
Search

Aðalfundur FVH

  • Writer: FVH
    FVH
  • May 20
  • 2 min read

Aðalfundur FVH verður haldinn þann 28. maí nk. klukkan 16:00 á Vinnustofu Kjarvals


Dagskrá fundarins er eftirfarandi:

  1. Skýrsla stjórnar

  2. Yfirferð ársreiknings

  3. Samþykktir félagsins

    Samþykktir félagsins má nálgast hér.

    Tillaga liggur fyrir um eftirfarandi breytingar:

6.3. Einstaklingar sem gefa kost á sér til stjórnarsetu hjá félaginu þurfa að uppfylla skilyrði sem koma fram í 3. gr. samþykktanna og skila ferilskrá og upplýsingum um framboð sitt til framkvæmdastjóra félagsins eigi síðar en fjórum dögum fyrir aðalfund. 

Verður: 6.3. Einstaklingar sem gefa kost á sér til stjórnarsetu hjá félaginu þurfa að hafa burtfararpróf frá viðurkenndum háskóla í viðskipta- eða hagfræði. Frambjóðendur skulu skila ferilskrá og upplýsingum um framboð sitt til kjörstjórnar eigi síðar en fjórum dögum fyrir aðalfund. Stjórn skipar kjörstjórn tveimur vikum fyrir aðalfund. Stjórn getur veitt undanþágu frá kröfu um menntun stjórnarmanna. 

8.1. Stjórn félagsins skal skipuð allt að tíu einstaklingum. Stjórnarmenn skulu kjörnir sérstaklega með bundinni kosningu á aðalfundi til tveggja ára í senn. Séu fleiri en tíu í framboði skal fjöldi atkvæða ráða því hverjir setjast í stjórn. 

Verður: 8.1. Stjórn félagsins skal skipuð fimm til átta einstaklingum. Stjórnarmenn skulu kjörnir sérstaklega með bundinni kosningu á aðalfundi til tveggja ára í senn. Séu fleiri en átta í framboði skal fjöldi atkvæða ráða því hverjir setjast í stjórn. 

8.3. Stjórn kýs formann, varaformann og gjaldkera úr hópi stjórnarmanna á aðalfundi félagsins eða á fyrsta stjórnarfundi eftir aðalfund og skiptir að öðru leyti með sér verkum. Eigi má kjósa sama mann til formennsku nema tvö kjörtímabil í senn. 

Verður: 8.3. Stjórn kýs formann, varaformann og gjaldkera úr hópi stjórnarmanna á aðalfundi félagsins eða á fyrsta stjórnarfundi eftir aðalfund og skiptir að öðru leyti með sér verkum.

Ný grein: 9.8. Stjórn er heimilt að greiða aðilum stjórnar stjórnarlaun miða við ábyrgð og verkefnaskiptingu. Ákvörðun um stjórnarlaun skal endurskoðuð miða við verkefnastöðu og fjárhagstöðu fyrir aðalfund ár hvert.

  1. Kosning stjórnar

  2. Kosning endurskoðanda

  3. Önnur mál


Nánari upplýsingar má nálgast með því að senda póst á fvh@fvh.is



 
 
 

Comments


bottom of page