top of page
Search

Þekkingarverðlaun FVH

  • Writer: FVH
    FVH
  • Mar 31
  • 1 min read

Dómnefnd Þekkingarverðlaunanna hefur verið skipuð einstaklingum með víðtæka reynslu úr atvinnulífinu: Birnu Ósk Einarsdóttur, Forstjóra Húsasmiðjunnar, Magnúsi Halldórssyni, Ráðgjafa og viðskiptastjóra hjá Íslandsstofu og Freyr Friðfinnson, viðskiptastjóri fyrir tækni og hugverkaiðnað hjá Samtökum Iðnaðarins ásamt þeim ásamt Telmu Eir Aðalsteinsdóttur formanni FVH og Jóhanni Sveini Friðleifssyni, varaformanni FVH.


Þekkingarverðlaunin verða afhent þann 19. maí nk. af Forseta Íslands, Höllu Tómasdóttur.


Þema ársins er í ár er eftirfarandi: Við val á Þekkingarfyrirtæki ársins verður horft til fyrirtækja sem hafa með árangursríkum hætti bætt við tekjustrauma fyrirtækis á síðustu árum í formi ytri vaxtar eða með útvíkkun á rekstri utan kjarnastarfsemi.


Þá verður litið sérstaklega til fyrirtækja þar sem mælanlegur árangur hefur náðst í rekstrarhagræðingu, til að mynda með samnýtingu innviða og mannauðs. Einnig verður horft til þess hvort fyrirtæki hafi sett fram skýra vaxtarstefnu og með markvissum hætti skilað ávinningi af sameiningum og samþættingu til viðskiptavina.


Við sama tilefni veitir stjórn Félags viðskipta- og hagfræðinga nafnbótina viðskipta- eða hagfræðingur ársins 2026.


Ert þú búin/-nn að senda inn tilnefningu?



 
 
 

Comments


bottom of page