ja_mageia

Um FVH
Félag viðskiptafræðinga og hagfræðinga, FVH er framsækið og virt fagfélag háskólamenntaðs fólks á sviði viðskiptafræða og hagfræða og má rekja sögu félagsins allt til ársins 1938.
  • Narrow screen resolution
  • Wide screen resolution
  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size

EMail Prentvæn útgáfa

Sendu inn viðburð

Event 

Title:
Hagnýting gagnasafnskerfa
When:
25.03.2010 - 09.04.2010 15.15 h - 19.15 h
Flokkur:
Aðrir viðburðir

Description

Námskeið fyrir þá notendur sem vilja nota "alvöru" gagnasafnskerfi til að vinna með gögn, hvort sem þeir hafa hingað til notað Excel, venjulegar textaskrár eða bara pappírsskjöl. Fjallað verður um fræðin sem flest gagnasafnskerfi í dag byggja á. Skoðað verður hvernig á að skipuleggja töflugagnasöfn, hvernig á að flytja inn gögn og hvernig hægt er að leita að upplýsingum í gagnasafninu. Æfingar verða gerðar í gagnasafnskerfunum MS Access og PostgreSQL (eða MySQL).

Fjallað verður um uppbyggingu töflugagnasafnskerfa og hönnun gagnasafna með einindavenslalíkaninu. Lyklar og staðalskipulag gagna. SQL fyrirspurnarmálið. Kynning á mismunandi eiginleikum gagnasafnskerfanna MS Access og PostgreSQL (MySQL) og samanburður við annað geymsluform, svo sem MS Excel.

Kennarar: Hjálmtýr Hafsteinsson, dósent í tölvunarfræði við verkfræði- og náttúruvísindasvið HÍ

Tími: Fim. og fös. 25 og 26. mars og 8. og 9. apríl kl. 15:15-19:15 (4x)

Verð: 44.600 kr.

Staður: Endurmenntun, Dunhaga 7

Nánari upplýsingar um námskeiðið og skráning í síma 525 4444 eða hér: http://www.endurmenntun.hi.is/Namsframbod/Namskeid/Hugbunadur/Nanarumnamskeid/91V10


Blöð FVH


hagur_april_2010

kjarahagur_sept_2009_forsida

Innskráning