Ætlað fjármálastjórum fyrirtækja sem og öðrum stjórnendum auk endurskoðenda og annarra sem koma að fjármálum fyrirtækja.
Kynntur verður fjöldi virðismatsaðferða þar sem sérstök áhersla verður lögð á frjálst sjóðstreymi til fyrirtækis (e. Free Cash Flow to Firm, FCFF), arðgreiðslulíkan (e. Dividend Discount Model), margfaldara (e. Multiples) og hagrænan hagnað (e. Economic Profit Model). Kostir og gallar þessara aðferða verða kynntir. Farið verður yfir helstu virðisrekla (e. value drivers) fyrirtækja og tenging milli virðissköpunar og upplýsinga sem liggja fyrir í ársreikningum skoðuð. Í lok fyrri hluta námskeiðsins fá þátttakendur í hendurnar fjölda dæma sem leystur verður í síðari hlutanum. Gert er ráð fyrir að þátttakendur hafi grunnkunnáttu í lestri ársreikninga.
Ein. FLE: 8 Reikningshald.
Kennari: Erlendur Davíðsson, hagfræðingur
Tími: Fim. 4. og 11. mars kl. 15:30-19:30
Verð: 28.500 kr. (Félagar í FVH fá 15% afslátt af námskeiðsgjaldi)
Staður: Endurmenntun, Dunhaga 7
Nánari upplýsingar um námskeiðið og skráning í síma 525 4444 eða hér:
http://www.endurmenntun.is/Namsframbod/Namskeid/Fjarmalogreikningsskil/Nanarumnamskeidid/124v10