ja_mageia

FVH
FVH er fagfélag háskólamenntaðs fólks á sviði viðskiptafræða og hagfræða. Félagsgjaldinu er stillt í hóf. Ef þú hefur útskrifast sem viðskiptafræðingur eða hagfræðingur frá viðurkenndum íslenskum háskóla ert þú gjaldgeng/ur í félagið.
  • Narrow screen resolution
  • Wide screen resolution
  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size

EMail Prentvæn útgáfa

Sendu inn viðburð

Event 

Title:
Orkuverið - viðskiptastefnumót
When:
03.03.2010 17.00 h - 19.00 h
Flokkur:
Fundir

Description

Viðskiptastefnumót verður haldið miðvikudaginn 3. mars 2010 kl. 17-19. Hönnunarmiðstöð Íslands og Innovit í samstarfi við Klak og Félag viðskiptafræðinga og hagfræðinga standa fyrir Orkuverinu - samstarfsvettvangi þar sem markmiðið er að koma á farsælu samstarfi hönnuða og viðskiptafræðinga með það í huga að nýta orku og hugmyndaauðgi ólíkra einstaklinga til að stofna saman fyrirtæki.

Næsta viðskiptastefnumót verður:

Hvar: Á Háskólatorgi 3. mars kl. 17-19

Fyrir hverja: Hönnuði og viðskiptafræðinga

Hvernig: Skráið ykkur á honnunarmidstod.is eða með því að senda póst á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Undirbúningur og kynning: Mæta með ferilskrá ykkar eða A4 blað þar sem fram kemur menntun, reynsla, áhugasvið og „kontakt“ upplýsingar - þetta sýnið þið viðmælendum ykkar. Gott er að koma með nokkur eintök til að dreifa.

Fyrirkomulag:
Þetta verður einskonar „hraðstefnumót“ þar sem hver hönnuður og viðskiptafræðingur fá um 10 mínútur til að spjalla saman og kynna sig hver fyrir öðrum, sem og að kanna grundvöll til áframhaldandi samstarfs.

Framhald: Ef áhugi skapast fyrir því að hefja samstarf hafa viðkomandi hönnuður og viðskiptafræðingur samband hver við annan.

Frekari upplýsingar má nálgast á www.innovit.is og www.honnunarmidstod.is


Blöð FVH


hagur_april_2010

kjarahagur_sept_2009_forsida

Innskráning