ja_mageia

Um FVH
Félag viðskiptafræðinga og hagfræðinga, FVH er framsækið og virt fagfélag háskólamenntaðs fólks á sviði viðskiptafræða og hagfræða og má rekja sögu félagsins allt til ársins 1938.
  • Narrow screen resolution
  • Wide screen resolution
  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size

EMail Prentvæn útgáfa

Sendu inn viðburð

Event 

Title:
Fátt er reynslunni fróðara
When:
01.06.2010 12.00 h - 13.30 h
Flokkur:
Fundir

Description

FVH stendur fyrir hádegisverðarfundi þriðjudaginn 1. júní n.k. á Grand Hótel og að þessu sinni er hann tileinkaður forsprökkum úr íslensku athafnalífi áður en æskudýrkunin, hraði og græðgi tóku völdin og “gömlu gildin” fylgdu ekki með. Frummælendur verða þau Sigurður Þórðarson, fyrrv. ríkisendurskoðandi, Guðrún Lárusdóttir, framkvæmdastjóri Stálskipa, Sólon R. Sigurðsson, fyrrv. bankastjóri, og Davíð Scheving Thorsteinsson, fyrrv. framkvæmdastjóri. Elín Hirst, fjölmiðlakona, stýrir fundi og fyrirspurnum úr sal.

SKRÁNING HÉR!

 

FÁTT ER REYNSLUNNI  FRÓÐARA
- Drögum lærdóm af reynsluboltum úr íslensku athafnalífi sem viðra skoðanir sínar á fortíð, nútíð og framtíð.

Hvaða lærdóm getum við dregið af fortíðinni? Hafa grunngildi íslensks viðskiptalífs breyst? Hver er munurinn á viðskiptum þá og nú? Á hverju byggjum við Ísland til framtíðar?

Fundurinn hefst  kl. 12.00 og lýkur kl. 13.30. Í boði verður léttur hádegisverður.

Verð fyrir félagsmenn 3.000 og 4.900 fyrir aðra.

 

Sigurður Þórðarson, fyrrv. ríkisendurskoðandi

„Hvað fór úrskeiðis“

Sigurdur Thordarson

Sigurður er fæddur 9.12. 1941 í Hafnarfirði. Hann er löggildur endurskoðandi frá árinu 1982 og hefur starfað innan opinberrar stjórnsýslu frá árinu 1974. Hann var deildarstjóri hjá Ríkisendurskoðun frá 1974 til 1980, skrifstofustjóri Fjármálaráðuneytis 1981 til 1988, aðstoðar ríkisendurskoðandi 1988 -1991 og ríkisendurskoðandi frá þeim tíma til miðs árs 2008. Sigurður hefur setið í fjölmörgum  stjórnum og nefndum á vegum hins opinbera auk setu í stjórn Félags löggildra endurskoðenda , reikningsskilaráði og sem endurskoðandi félags evrópskra endurskoðenda og í stjórn þeirra samtaka. Hann hefur verið endurskoðandi Evrópuráðs í Strassbourg og átt sæti í endurskoðunarráði Viðreisnasjóðs Evrópuráðsins í París. Síðasta árið hefur Sigurður starfað fyrir Rannsóknarnefnd Alþingis.
Sigurður mun fjalla um umfang hrunsins í erindi sínu „Hvað fór úrskeiðis.“ Hann kemur lítils háttar  inná þátt bankanna, eftirlitsaðila og opinberra aðila í því sambandi.

 

Guðrún Lárusdóttir, framkvæmdastjóri Stálskipa

„Spjall um fortíð, nútíð og framtíð“

Gudrun LarusdottirGuðrún er fædd 29. ágúst 1933 og uppalin í Reykjavík og flutti til Hafnarfjarðar árið 1953 og hefur búið þar síðan að frátöldum árunum 1956-59 sem hún bjó í Danmörku og síðan í eitt ár eftir það í Reykjavík. Hún hefur bæði búið og starfað í Hafnarfirði. Hún tók landspróf frá Gagnfræðaskóla Vesturbæjar 1949 og stundaði nám við Menntaskólann í Reykjavík 1950-1951. Guðrún vann við skrifstofustörf hjá Blindravinafélagi Íslands 1951-1953. Guðrún er útgerðarmaður og hefur verið framkvæmdastjóri Stálskipa ehf frá 1970. Hún hefur setið í stjórn Útvegsmannafélags Hafnarfjarðar frá 1983 lengst af sem formaður. Þá var hún í stjórn Fiskmarkaðs Hafnarfjarðar frá 1987-1994, í stjórn Landssambands ísl. útvegsmanna frá 1983 og fulltrúi þeirra í Útflutningsráði nokkur ár. Guðrún sat í varastjórn jafnréttisráðs Vinnuveitandasamband Íslands í nokkur ár, í varastjórn Olíufélagsins hf. frá 1995-2004 og í bankaráði Íslandsbanka 2003. Þá hefur hún setið í sjóðstjórn Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í erl. tungumálum frá 2003.

 

Sólon R. Sigurðsson, fyrrv. bankastjóri

„Bankakerfið á Íslandi í fortíð, nútíð og framtíð“

Solon Sigurdsson Sólon er fæddur í Reykjavík þann 1. mars 1942. Hann hætti námi við Menntaskólann í Reykjavík í 6. bekk árið 1961. Þá hóf hann störf hjá Landsbanka Íslands, þar sem hann gegndi ýmsum störfum, seinast sem útibússtjóri bankans í Ólafsvík og á Hellissandi á árunum 1978 til 1982. Sólon starfaði hjá Scandinavian Bank Ltd. í London á árunum 1972 og 1973. Hann var í ársbyrjun 1983 ráðinn aðstoðarbankastjóri og forstöðumaður erlendra viðskipta Búnaðarbanka Íslands í Reykjavík. Sólon lét af störfum forstjóra Kaupþings-Búnaðarbanka hf. í árslok 2004. Hann var í stjórn Vísa-Ísland í 19 ár og í stjórn Lýsingar í yfir 20 ár. Einnig sat hann í stjórn og sem formaður Kaupþings í nokkur ár og í stjórn Þróunarfélags Íslands í nokkur ár auk setu í stjórnum fleiri félaga og nefnda. Sólon var formaður Sambands íslenskra bankamanna 1975 til 1979, í stjórn Norræna bankamannasambandsins og ritstjóri Bankablaðsins sömu ár. Þá var Sólon í stjórnum fjölda íþróttafélaga og ráða og samböndum á þeirra vegum á yngri árum.

 

Davíð Scheving Thorsteinsson, fyrrv. framkvæmdastjóri

"Mjök erum tregt tungu at hræra..."

David SchevingDavíð er fæddur á Ísafirði 4. janúar 1930. Hann fór sem gutti að vinna hjá Ljóma við að þvo og smíða kassa og síðar að keyra út og selja smjörlíki. Segja má að starfsferill hans þar nái allt frá 1945 fram til ársins 1994. Davíð lauk cand philol frá Háskóla Íslands árið 1950. Hann var verksmiðjustjóri S.L.Á. (Smára, Ljóma og Ásgarði) Ltd. 1951-1957 og framkvæmdastjóri sama fyrirtækis 1957-1964. Hann var síðan framkvæmdastjóri hjá Smjörlíki og Sól í ríflega 30 ár eða frá 1964-1995. Davíð var stofnandi og stjórnarformaður Pole Star Co 1966-2009. Hann hefur auk þess tekið virkan þátt í félagsstörfum í gegnum tíðina og sat meðal annars í stjórn Rauða Kross Íslands 1958-1971, þar af sem formaður 1969-1971, formaður Félags íslenskra iðnrekenda 1974-1982 og átti sæti í samningaráði 1978-1980 og var varaformaður Vinnuveitendasambandsins 1984-1985. Þá var hann formaður bankaráðs Iðnaðarbankans 1983-1989, átti sæti í bankaráði Seðlabankans 1993-1998 og var formaður ráðgjafanefndar EFTA og í samstarfsnefnd EFTA/EBE 1976-1982. Að auki hefur Davíð átt sæti í stjórnum nokkurra hlutafélaga í áranna rás og átti hann meðal annars þátt í að semja leiðbeiningar um stjórnun fyrirtækja. Davíð er aðalræðismaður Írlands frá árinu 1983.

 

Elin Hirst

Elín Hirst, fjölmiðlakona, stýrir fundi og fyrirspurnum úr sal. Elín er fyrrverandi fréttastjóri Sjónvarpsins. Hún er fjölmiðlafræðingur frá Bandaríkjunum og hefur einnig meistargráðu í sagnfræði frá Háskóla Íslands.  Hún hefur starfað við íslenska fjölmiðla í 25 ár.

 

 


Blöð FVH


hagur_april_2010

kjarahagur_sept_2009_forsida

Innskráning