




Félag viðskiptafræðinga og hagfræðinga efnir til morgunverðarfundar á Grand Hótel þriðjudaginn 27. apríl 2010, kl. 08:30-10:00. Frummælendur verða Þóranna Jónsdóttur, framkvæmdastjóri hjá Auði Capital, Halldór Friðrik Þorsteinsson, framkvæmdastjóri H.F. Verðbréfa og Salvör Nordal, forstöðumaður Siðfræðistofnunar. Orri Hauksson, verkfræðingur og MBA frá Harvard, stýrir fundi og fyrirspurnum úr sal.
Að undanförnu hefur mikið verið rætt um samfélagslega ábyrgð fyrirtækja (Corporate Social Responsibility - CSR). Auknu athafnafrelsi ættu að fylgja auknar kröfur um ábyrgð fyrirtækja en ekki verður annað séð af orsökum efnahagshrunsins að þar hafi verið skortur á. Viðskiptalífið þarf að bæta þar úr og gera auknar kröfur til fyrirtækja um að þau starfi í sátt við umhverfi sitt og stuðli að velferð í samfélaginu.
Verð: 2.500 kr. fyrir félagsmenn FVH og 4.000 kr. fyrir aðra. Morgunverður er innifalinn í verði.
Erindi frummælenda:
Þóranna Jónsdóttir - Samfélagsábyrgð fyrirtækja – lúxus eða lífsnauðsyn?
Salvör Nordal - Bankahrun og lærdómar.
Halldór Friðrik Þorsteinsson - Er það einfaldlega svo?
Um erindi Þórönnu: Er sjálfbærni jaðarmenning eða tískufyrirbæri? Mun draga úr samfélagsábyrgð þegar harðnar í ári? Samfélagsábyrgð fyrirtækja snýst ekki um góðgerðarstarf, náungakærleika, markaðsstarf né að bæta ímynd fyrirtækisins. Ábyrgð gagnvart samfélagi og umhverfi verður fyrr en varir eina leið fyrirtækja til að komast af í heilbrigðu samkeppnisumhverfi.
Um erindi Salvarar: Í fyrirlestrinum verður fjallað um þá lærdóma sem viðskiptalífið getur dregið af bankahruninu eins og þeir eru ræddir í skýrslu vinnuhóps um siðferði og starfshætti. Einkum verður staldrað við þau viðhorf sem þar koma fram til laga og reglna.
Um erindi Halldórs: Fjallað verður um samfélagslega ábyrgð fjármálafyrirtækja með hliðsjón af fyrirtækjamenningu og því sem gerðist hérlendis og erlendis.
Nánar um frummælendur og fundarstjóra:
Þóranna Jónsdóttir – framkvæmdastjóri hjá Auði Capital
Þóranna hóf störf hjá Auði í árslok 2007. Hún starfaði áður sem framkvæmdastjóri Artasan ehf og framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar Veritas Capital hf (áður hluti Vistor hf). Um árabil starfaði hún sem lektor, aðstoðardeildarforseti og forstöðumaður BS náms við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík, þar sem hún sinnti rannsóknum, kennslu og stjórnendafræðslu. Þá hefur hún einnig gegnt starfi framkvæmdastjóra Lyf & heilsu og starfi markaðsstjóra Íbúðarlánasjóðs. Þóranna er með meistaragráðu í lyfjafræði frá Háskóla Íslands, MBA gráðu frá IESE, í Barcelona og stundar nú doktorsnám við Cranfield University í Bretlandi. Þóranna lauk prófi í verðbréfaviðskiptum árið 2008. Hún hefur m.a. setið í stjórn Dreifingarmiðstöðvarinnar og Lyfju hf og er stjórnarformaður Artasan ehf. Hún hefur tekið þátt í ýmsum nefndarstörfum í gegnum tíðina og hefur víða haldið erindi um viðskiptatengd málefni.
Salvör Nordal - forstöðumaður Siðfræðistofnunar
Salvör hefur gengt starfi forstöðumanns Siðfræðistofnunar frá árinu 2001 auk þess sem hún hefur kennt við Sagfræði- og heimspekideild Háskóla Íslands. Hún var framkvæmdastjóri Íslenska dansflokksins 1989-1994, Listahátíðar í Reykjavík, 1985-6 og sinnti auk þess ýmsum fjölmiðlastörfum á árunum 1984-1994. Salvör lauk B.A.-prófi í heimspeki frá Háskóla Íslands árið 1989 og M.Phil-prófi í félagslegu réttlæti (e. Social Justice) frá Skotlandi 1992 og hefur stundað doktorsnám í heimspeki við Calgary-háskólann í Canada. Salvör hefur kennt fjölda námskeiða í heimspeki, einkum siðfræði, við Háskóla Íslands. Þá hefur hún haldið fyrirlestra og námskeið fyrir fjölmörg fagfélög og stofnanir á síðustu árum. Salvör var ein þeirra þriggja sem skipaði sérstakan vinnuhóp sem rannsakaði siðfræði og viðskiptahætti í tengslum við bankahrunið.
Halldór Friðrik Þorsteinsson - framkvæmdastjóri H.F. Verðbréfa
Halldór er með cand. oecon. og BA í heimspeki frá Háskóla Íslands og er stofnandi og framkvæmdastjóri H.F. Verðbréfa. Hann hóf störf hjá verðbréfamiðlun Kaupþings 1994, hlaut réttindi sem löggiltur verðbréfamiðlari 1998 og réttindi til verðbréfamiðlunar í New York árið 2000. Hann starfaði við einkabankaþjónustu Kaupþings S.A. í Luxemborg frá árinu 1998 þar til hann stofnsetti Kaupthing Securities Inc. fyrir Kaupþing í New York árið 2000 og veitti því forstöðu til 2003. H.F. Verðbréf var stofnað 16. desember 2003 og fékk starfsleyfi til verðbréfamiðlunar í febrúar 2004. H.F. Verðbréf er íslenskt verðbréfafyrirtæki sem starfar eftir lögum um fjármálafyrirtæki nr. 161/2002. Fyrirtækið sinnir fagfjárfestum á sviði verðbréfamiðlunar og fyrirtækjaráðgjafar og er aðili að NASDAQ OMX kauphöllinni í Reykjavík.
Orri Hauksson - verkfræðingur og MBA frá Harvard
Orri er vélaverkfræðingur frá Háskóla Íslands og MBA frá Harvard Business School. Orri hefur gegnt ýmsum stjórnunarstöðum og hefur undanfarin ár setið fyrir hönd Novator í stjórnum nokkurra skráðra og óskráðra félaga á Norðurlöndum og Bandaríkjunum, á sviði fjarskipta og hreinna orkugjafa. Orri var áður framkvæmdastjóri þróunarsviðs Símans og hefur m.a. setið í stjórnum Kögunar, Straums fjárfestingarbanka, Eimskipafélagsins og Tæknivara sem helsti eigandi þess. Orri var aðstoðarmaður forsætisráðherra 1997-2000.
EventList powered by schlu.net
No current events.