




FVH efnir til hádegisverðarfundar á Grand Hótel, miðvikudaginn 17. mars kl. 12.00-13.30 um framtíð íslensks fjármálamarkaðar. Frummælendur verða Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra, Kristín Pétursdóttir forstjóri Auðar Capital, Þórður Friðjónsson forstjóri NASDAQ OMX á Íslandi og Auður Finnbogadóttir framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs Kópavogs. Rannveig Rist forstjóri Rio Tinto Alcan stýrir fundi og fyrirspurnum úr sal.
Verð: 3.000 kr. fyrir félagsmenn FVH og 4.900 kr. fyrir aðra. Hádegisverður er innifalinn.
Gylfi Magnússon lauk cand. oecon. frá viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands (þjóðhagskjarna) 1990. Hann nam hagfræði við Yale University í Bandaríkjunum frá 1990 til 1998. Hann varð M.A. í hagfræði 1991, M.Phil. 1994 og Ph.D. 1997. Sérgreinar í doktorsnámi voru atvinnuvegahagfræði, leikjafræði og fjármál, ritgerð fjallaði um byggðaþróun og byggðastefnu á Íslandi. Gylfi var aðstoðarkennari í Yale University 1992-1995, sérfræðingur á Hagfræðistofnun frá 1996 til 1998, stundakennari í viðskipta- og hagfræðideild HÍ frá 1996 til 1998 og aðjúnkt frá 1997 til 1998. Hann varð síðan dósent í viðskiptaskor frá 1. október 1998 og við viðskiptafræðideild frá 1. júlí 2008, en fékk leyfi frá störfum frá 1. febrúar 2009 er hann var skipaður viðskiptaráðherra.
Kristín Pétursdóttir er hagfræðingur frá Háskóla Íslands og er með mastersgráðu í alþjóðaviðskiptum frá Handelshöyskolen í Bergen í Noregi. Hún er annar stofnenda Auðar Capital og er með 15 ára stjórnunarreynslu af íslenskum og alþjóðlegum fjármálamarkaði. Kristín er fyrrverandi framkvæmdastjóri fjárstýringar Kaupþings og aðstoðarforstjóri Kaupthing Singer & Friedlander í London.
Þórður Friðjónsson er forstjóri NASDAQ OMX á Íslandi. Áður gegndi hann starfi forstjóra Þjóðhagsstofnunar og var um tíma ráðuneytisstjóri í Iðnaðar- og viðskiptaráðuneytinu. Þar að auki hefur Þórður sinnt starfi efnahagsráðgjafa forsætisráðherra og verið kennari við hagfræðideild Háskóla Íslands. Þórður hefur gegnt fjölmörgum stjórnar- og nefndarstörfum á síðustu árum, meðal annars var hann fulltrúi Íslands í hagstjórnarnefnd OECD, varafulltrúi í sjóðsráði Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (IMF) og bankaráði Evrópubankans (EBRD) og stjórnarformaður Norræna verkefnaútflutningssjóðsins (Nordic Project Fund). Þórður lauk MA gráðu í hagfræði frá Queen’s University í Kanada og Cand.oecon frá Háskóla Íslands.
Auður Finnbogadóttir er viðskiptafræðingur frá University of Colorado at Boulder í Bandaríkjunum og lauk MBA prófi frá Háskólanum í Reykjavík árið 2005. Auður hefur starfað á fjármálamarkaði frá árinu 1993 og tók þátt í því að setja af stað regluleg útboð ríkisverðbréfa það ár. Auður var framkvæmdastjóri og meðstofnandi MP banka hf. Auður var ráðin framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar í ágúst 2009. Hún er stjórnarmaður í Framtakssjóði Íslands og stjórnarformaður Norðlenska Matborðsins.
Rannveig Rist hefur verið forstjóri álversins í Straumsvík í rúmlega þrettán ár eða frá því að hún tók við 1997. Hún hóf störf hjá álverinu sem yfirmaður öryggis- og gæðamála árið 1990. Rannveig er vélfræðingur frá Vélskóla Íslands og vélaverkfræðingur frá Háskóla Íslands. Þá lauk hún MBA prófi frá University of San Francisco 1989 og AMP frá Háskólanum í Reykjavík 2008. Rannveig hefur setið í stjórn Símans og Skipta frá árinu 2002 og var formaður 2002 til 2005. Hún tók á ný við formennsku í ársbyrjun 2010.
EventList powered by schlu.net
No current events.