|
Skrifað af: admin Administrator
|
|
Ef hægt er að lýsa hinum dæmigerða íslenska stjórnanda gæti það verið á þessa leið: Íslenskur stjórnandi er karlmaður á aldrinum 35-50 ára. Hann er vel menntaður með há laun og Davíð Oddsson er sá aðili sem hann lítur mest upp til. Hann er sjálfstæðismaður,stundar íþróttir og ver mest af frítíma sínum á meðal fjölskyldu og vina. Gengur ekki í gallabuxum í vinnunni og verslar fötin sín erlendis. Hann stefnir á starfslok við 65 ára aldur, vinnur mikið og þarf að bæta jafnvægi milli vinnu og einkalífs, sérstaklega ef hann starfar í einkageiranum. Íslenski stjórnandinn dreifir ábyrgð og verkum ásamt því að stuðla að markvissi starfsþróun fyrir starfsfólk sitt. Hann notar persónulegt og vinnutengt tengslanet sitt til að styrkja stjórnunarhæfileika sína og svarar því til að reynsla nýtist mun betur í starfi en menntun. Árangri í starfi þakkar hann að stórum hluta hæfni til
árangursríkra samskipta og telur þann þátt eitt af lykileinkennum góðs stjórnanda.
Hægt er að nálgast alla greinina hér.
.
|
|
Nánar...
|
|
|
Ný tækifæri í nýju starfi |
|
Skrifað af: admin Administrator
|
|
Það kemur að þeim degi í lífi flestra að þeir þurfa að
skipta um starf af einni eða annarri ástæðu. Hvort sem það er vegna þess að þú
ákveður sjálfur að hætta í vinnunni, þú hefur þegar sagt upp eða þér var sagt
upp skaltu einbeita þér strax að því að vera jákvæður og finna nýtt og betra
starf. Hafðu þó í huga að það er betra að flýta sér hægt og stökkva ekki á
fyrsta starf sem býðst. Það getur leitt til þess að þú velur vinnustað eða
starf sem hentar þér alls ekki og þú þarft að fara aftur af stað í atvinnuleit
eftir stuttan viðveru í nýju starfi. Gefðu þér heldur góðan tíma fyrir svo
mikilvægan hlut sem starfsframinn er. Ef þú ert þegar hættur í starfi þá er
gott að nota tímann og fara reglulega í góðar gönguferðir eða stunda aðra
reglulega hreyfingu til þess að efla sál og líkama. Það hjálpar þér til þess að
átta þig betur á hvað þig langar til að gera næst og hvaða kostir eru í
stöðunni. Auk þess losar það þig við óþarfa stress og áhyggjur og þú fyllist
krafti til að takast á við það sem framundan er.
|
|
Nánar...
|
|
Skrifað af: admin Administrator
|
Það er ekki nóg að hafa hæfileika og vera með fjölbreytta reynslu til þess að fá gott starf ef réttu aðilarnir vita ekki af því. Þú veist hvað þú hefur fram að bjóða og að þú getur staðið þig vel í þeim störfum sem þú sækist eftir en þú þarft að gera vinnumiðlunum og atvinnurekendum ljóst hvað þú hefur fram yfir aðra.
|
|
Nánar...
|
|
|
|
|
|
|