ja_mageia

Um FVH
Félag viðskiptafræðinga og hagfræðinga, FVH er framsækið og virt fagfélag háskólamenntaðs fólks á sviði viðskiptafræða og hagfræða og má rekja sögu félagsins allt til ársins 1938.
  • Narrow screen resolution
  • Wide screen resolution
  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Öflugur fundur með reynsluboltum
Skrifað af: admin Administrator   

Fátt er reynslunni fróðara 002-400FVH stóð fyrir hádegisverðarfundi á Grand hótel 1. júní 2010 undir yfirskriftinni Fátt er reynslunni fróðara. Á fundinum héldu miklir reynsluboltar frábær erindi og komu fram með ýmislegt sem draga má lærdóm af. Framsögumenn voru Sigurður Þórðarson, fyrrv. ríkisendurskoðandi, Guðrún Lárusdóttir, framkvæmdastjóri Stálskipa, Sólon R. Sigurðsson, fyrrv. bankastjóri, og Davíð Scheving Thorsteinsson, fyrrv. framkvæmdastjóri. Elín Hirst, fjölmiðlakona, stýrði fundinum.

Framsögumenn hafa allir lifað tímanna tvenna og fundarmönnum þótti mjög áhugavert að hlusta að þeirra fróðlegu og skemmtulegu erindi. Sannarlega þykir tímabært að dusta rykið af gömlum og góðum gildum.

Sigurður Þórðarson, sem hefur m.a. starfað fyrir Rannsóknarnefnd Alþingis, fjallaði um umfang hrunsins í erindi sínu og kom inn á þátt bankanna, eftirlitsaðila og opinberra aðila í því sambandi.

Útgerðarmaðurinn og framkvæmdastjórinn Guðrún Lárusdóttir tók ýmis dæmi frá fyrri tíð tengt hagsýni og ráðvendni.

Sólon R. Sigurðsson, sem hætti í MR í 6. bekk og hóf stöf í banka, fjallaði um bankakerfið á Íslandi, sérstaklega fyrr á tímum og hvað margt hefði breyst í þeim efnum. Honum þótti sala Búnaðarbankans ganga undarlega hratt fyrir sig. Hann taldi þá stefnu að hverfa frá sölu Búnaðarbankans í litlum hlutum hafi verið röng og verið upphafið að því sem síðar varð.

Davíð Scheving Thorsteinsson kom fram með ýmis heilræði og sagði ekkert hættulegra manninum en hroki. Hann benti á það að á Íslandi greiða menn 1200% hærri vexti af húsnæðislánum sínum en í Danmörku. Þá nefndi Davíð að íslenska krónan og sú danska voru jafnar að verðmæti rétt fyrir fæðingu hans árið 1930 en núna þyrfti að greiða um 22 íslenskar krónur fyrir eina danska og þá er búið að taka tvö núll aftan af þeirri íslensku. Má því velta fyrir sér hvort okkur sé stjórnað 2200 sinnum ver heldur en dönum.

Erindin má lesa hér (einungis fyrir félagsmenn)

Myndir frá fundinum:

 

Blöð FVH


hagur_april_2010

kjarahagur_sept_2009_forsida