




| Fyrirtæki ársins 2010 - Viðskiptafræðingur ársins |
| Skrifað af: admin Administrator |
|
Þetta er í 10. sinn sem Félag viðskiptafræðinga og hagfræðinga afhendir þekkingarverðlaun til fyrirtækis ársins og í 8. sinn sem viðskiptafræðingur eða hagfræðingur ársins er valinn. Forseti Íslands, Hr. Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti verðlaunin en hann er verndari þekkingarverðlauna FVH.
Að lokinni setningu hátíðar og ávarps formanns, Auðar Bjarkar Guðmundsdóttur, flutti Vilhjálmur Þorsteinsson, stjórnarformaður CCP, erindi um fyrirtækjamenningu, sterk gildi og sjálfbærni. Hr. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, flutti því næst ávarp og afhenti þekkingarverðlaunin. Guðrún Ragnarsdóttir, formaður dómnefndar um fyrirtæki ársins, kynnti val dómnefndar, sem eins og áður greinir kom í hlut Fjarðarkaupa. Auður Björk Guðmundsdóttir, formaður dómnefndar um viðskipta- eða hagfræðing ársins kynnti val dómnefndar en fyrir valinu varð eins og að ofan greinir Magnús Geir Þórðarson, leikhússtjóri Borgarleikhússins. Ávarp formanns
Í niðurstöðu dómnefndar um fyrirtæki ársins segir: ”Fyrirtækið sem hlýtur þekkingarverðlaun Félags viðskiptafræðinga og hagfræðinga er sannkölluð fyrirmynd og sérstaklega hvað varðar mikilvægi þess að sýna ráðdeild og sníða sér stakk eftir vexti. Um fyrirtækið segir m.a. í könnun sem gerð var meðal félagsmanna FVH að hér sé á ferðinni gott dæmi um það hversu mikilvægt það er að þekkja uppruna sinn. Það er niðurstaða dómnefndar að Fjarðarkaup sé rétta fyrirtækið til að hljóta þekkingarverðlaun Félags viðskiptafræðinga og hagfræðinga að þessu sinni. Fjarðarkaup var stofnað árið 1973 og í þau 37 ár sem það hefur verið rekið hafa alltaf sömu grunngildin verið höfð að leiðarljósi – kolahagfræðin eins og þeir feðgar kalla það, og samfélagsleg ábyrgð. Kolahagfræðin er ekki flókin vísindi, en það getur reynst ýmsum erfitt að halda sér við fræðina, þ.e. að eyða ekki um efni fram og taka aldrei meira út úr fyrirtækinu en inneign er fyrir. Samfélagsleg ábyrgð er annað einkenni Fjarðarkaupa en feðgarnir leggja mikið upp úr því að allir fái eitthvað fyrir sinn snúð, hvort sem það eru birgjar, starfsmenn, viðskiptavinir eða eigendur. Á þessum forsendum hefur Fjarðarkaup náð miklum árangri á sínu sviði sem m.a. felst í því að á 37 ára tímabili hefur fyrirtækið ávallt verið samkeppnisfært án þess að missa sjónar af sínum grunngildum. Sú tryggð sem Fjarðarkaup hefur áunnið sér er að finna hjá starfsmönnum, viðskiptavinum og birgjum. Af þeim 100 starfsmönnum sem vinna hjá fyrirtækinu voru á síðasta ári 34 sem voru komnir með 10 ára starfsaldur eða meira. Í þessum geira er starfsmannaveltan gríðarlega mikil en þrátt fyrir það hefur Fjarðarkaup haldist vel á sínu fólki. Það má segja að í kjölfar hrunsins haustið 2008 hafi Fjarðarkaup aftur komist í tísku. Veltan á síðasta ári jókst um 20% á milli ára og fjöldi heimsókna um 12% á sama tíma. Fjarðarkaup hefur líka verið að sækja inn á ný mið og í dag býður verslunin upp á eitt mesta úrval í heilsuvörum. Fjarðarkaup er ein-stök verslun, eins og þeir segja sjálfir, það er sannkölluð upplifun að versla þar enda brýna þeir fyrir sínum starfsmönnum að „Fjarðakaup er ekki félagsmiðstöð eins og við eigum að venjast en hingað kemur fólk til að hitta mann og annan og því er mikilvægt að leggja áherslu á að fólki líði vel þegar það kemur í verslunina.“”
Í niðurstöðu dómnefndar um viðskiptafræðing eða hagfræðing ársins segir: ”Magnús Geir er leikhússtjóri Borgarleikhússins. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík og nam leikstjórn við Bristol Old Vic Theatre School. Þá lauk hann MA prófi í leikhúsfræðum við The University of Wales og MBA prófi frá Háskólanum í Reykjavík. Magnús Geir var ráðinn leikhússtjóri Borgarleikhússins árið 2008 eftir að hafa stýrt leikfélagi Akureyrar um fjögurra ára skeið með frábærum árangri. Á Akureyri var algjör viðsnúningur á starfsemi leikhússins undir hans stjórn. Bylting varð á aðsókn að leikhúsinu en árlegur fjöldi leikhúsgesta nífaldaðist í hans tíð og sala áskriftarkorta margfaldaðist. Í listrænu tilliti var árangur Magnúsar einnig frábær, en sýningar leikfélagsins fengu góða dóma auk þess að hljóta fjölda verðlauna og viðurkenninga. Leikhúsið varð eitt helsta aðdráttarafl Akureyrar og hafði mikil og góð áhrif á ferðaþjónustu á Eyjafjarðarsvæðinu. Alger viðsnúningur varð á fjármálum leikhússins en hagnaður var á rekstri leikfélagsins öll leikár Magnúsar. Borgarleikhúsið, sem Magnús Geir stýrir í dag, er fjölsóttasta leikhús landsins. Gestir hafa aldrei verið fleiri en á síðasta leikári þegar um 208.000 gestir sóttu sýningar leikhússins. Það er mesta aðsókn í sögu íslensks leikhúss. Magnús leggur áherslu á afar fjölbreytt verkefnaval og kappkostar að eiga í virku samtali við samfélagið. Það er honum kappsmál að leikhúsið bjóði upp á framúrskarandi leiksýningar og að Borgarleikhúsið sé opið öllum landsmönnum. Árangur Borgarleikhússins í kortasölu hefur verið með ólíkindum, en frá því að Magnús Geir tók við sem leikhússtjóri hefur hún meira en átjánfaldast. Borgarleikhúsið státar nú af um 10.000 kortagestum en þeir voru áður um 500 talsins. Magnús Geir hefur náð á eftirtektarverðan máta að tengja saman viðskipti, menningu og listir og hann hefur náð bæði faglegum og rekstrarlegum árangri með leikhúsin sem hann hefur stýrt. Hann er mikill frumkvöðull á sínu sviði og óumdeildur sem slíkur. Magnús hefur sýnt og sannað að í honum býr mikill leiðtogi því bæði starfsandi jafnt sem aðsókn hafa náð mikilli siglingu undir hans stjórn. Sýningar í Borgarleikhúsinu hafa verið fjölbreyttar og vandaðar auk þess sem reksturinn hefur gengið vel. Reksturinn á síðasta starfsári var t.a.m. hallalaus þrátt fyrir óvæntan niðurskurð á opinberum stuðningi vegna kreppunnar. Með samstilltu átaki starfsmanna leikhúsins, frábærri aðsókn, aðhaldi og sparnaði og góðu samstarfi við samstarfsaðila náði Borgarleikhúsið undir stjórn Magnúsar að brúa bilið og ná endum saman. Magnús Geir er vel að þessari viðurkenningu kominn. Það er niðurstaða dómnefndar FVH að hann sé óumdeilanlega þess verðugur að vera viðskiptafræðingur ársins 2009.”
Myndir frá verðlaunahátíðinni:
|