|
Félag viðskiptafræðinga og hagfræðinga (FVH) afhendir Íslensku þekkingarverðlaunin í tíunda sinn fimmtudaginn 11. febrúar 2010 á Hilton Reykjavík Nordica. Félagsmönnum félagsins og helstu aðilum íslensks viðskiptalífs er boðið til móttökunnar sem mun standa frá kl. 17:00 til kl. 19:00.
SKRÁNING HÉR! Nauðsynlegt er að skrá þátttöku.
Dagskrá: Ávarp formanns. Auður Björk Guðmundsdóttir formaður FVH "Það skal vanda sem lengi á að standa": Um fyrirtækjamenningu, sterk gildi og sjálfbærni. Vilhjálmur Þorsteinsson stjórnarformaður CCP Ávarp forseta Íslands. Hr. Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands Afhending Íslensku þekkingarverðlaunanna. Forseti Íslands afhendir verðlaunin
Að venju mun FVH veita því fyrirtæki eða stofnun sem þykir hafa skarað fram úr Íslensku þekkingarverðlaunin. Auk þess verður kynnt val félagsins á viðskipta- eða hagfræðingi ársins, sem fellur í skaut félagsmanns sem þykir hafa náð framúrskarandi árangri í starfi á liðnu ári. Dómnefndir eru skipaðar valinkunnum sérfræðingum úr íslensku viðskiptalífi.
Forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, mun afhenda verðlaunin en hann er verndari þekkingardagsins.
FVH veitir í tíunda sinn Íslensku þekkingarverðlaunin. Að þessu sinni eru verðlaunin veitt því fyrirtæki sem skarað hefur fram úr. Þau fyrirtæki sem tilnefnd eru til Íslensku þekkingarverðlaunanna í ár eru CCP, Fjarðarkaup, Icelandair Group og Össur. Sérstök dómnefnd sker úr um hvert ofangreindra fjögurra fyrirtækja hlýtur Íslensku þekkingarverðlaunin. Áður hefur Actavis hlotið verðlaunin þrívegis en hin fyrirtækin, sem hlotið hafa þekkingarverðlaunin, eru CCP, Össur, Kaupþing, Glitnir, Marel og Íslensk erfðagreining.
FVH veitir í áttunda sinn viðurkenningu til handa viðskiptafræðingi/hagfræðingi ársins valinn úr hópi þeirra sem þykja hafa skarað fram úr á liðnu ári. Dómnefnd sker úr um það hver hlýtur viðurkenninguna.
Leitað var eftir áliti félagsmanna FVH með netkönnun um tilnefningar til Íslensku þekkingarverðlaunanna og viðskiptafræðings/hagfræðings ársins 2009. Niðurstöður netkönnunar voru hafðar til hliðsjónar við tilnefningar.
Verðlaunaafhendingin fer fram á Hilton Reykjavík Nordica fimmtudaginn 11. febrúar n.k. Þátttöku þarf að skrá á vef FVH, www.fvh.is eða í síma 551 1317. Boðið verður upp á léttar veitingar.
Styrktaraðilar móttökunnar eru Actavis, Arion banki, Intrum, N1 og VÍS
|