|
Tilnefningar vegna fyrirtækis ársins og viðskipta- eða hagfræðings ársins |
|
Skrifað af: admin Administrator
|
|
Félag viðskiptafræðinga og hagfræðinga stendur fyrir vali á fyrirtæki ársins og viðskiptafræðingi eða hagfræðingi ársins 2009. Félagið hefur sent út könnun í gegnum póstlista félagsins þar sem óskað er eftir tilnefningum til þekkingarverðlauna FVH. Óskað er eftir að tilnefnd séu þau fyrirtæki eða stofnun sem þykir hafa skarað fram úr og verið öðrum fyrirmynd. Einnig er óskað tilnefningar á viðskiptafræðingi eða hagfræðingi sem þykir hafa skarað fram úr á liðnu ári ásamt rökstuðningi í nokkrum orðum.
Dómnefnd fer yfir tilnefningar og birtir niðurstöður sínar á Íslenska þekkingardeginum sem haldinn verður 11. febrúar nk. Nánari upplýsingar um Íslenska þekkingardaginn verða sendar út síðar.
Hægt er að senda tilnefningar hér
|