




| Lög um rétt manna til að kalla sig viðskiptafræðinga eða hagfræðinga |
| Skrifað af: Arnar |
Starfsheitið viðskiptafræðingur og hagfræðingur er lögverndað!
Samkvæmt fyrrnefndum lögum hafa þeir menn hér á landi sem hafa til þess leyfi viðskiptaráðherra rétt til að kalla sig viðskiptafræðinga, hagfræðinga eða nota heiti sem felur í sér orðið viðskiptafræðingur eða hagfræðingur. Þeir sem lokið hafa BS- eða cand.oecon prófi frá viðskiptadeild, BS-prófi frá hagfræðideild viðurkennds íslensks háskóla eða meistaranámi úr framangreindum deildum þurfa ekki slíkt leyfi ráðherra sbr. lög um háskóla nr. 136/1997. Hlutverk FVH er að stuðla að því að félagsmenn og aðrir áhugamenn um þessi fræði njóti fræðslu og endurmenntunar. FVH vill efla kynni og tengsl félagsmanna og hlúa að kjörum þeirra með ýmsum hætti s.s. með árlegri kjarakönnun. Allir þeir sem útskrifast hafa sem viðskiptafræðingar eða hagfræðingar frá viðurkenndum íslenskum háskólum eru gjaldgengir í félagið. Sama á við um þá sem lokið hafa meistaraprófi úr viðskipta- eða hagfræðideild óháð grunngráðu. Þetta gildir einnig um þá sem lokið hafa MBA námi. Þeir sem fengið hafa leyfi til að kalla sig viðskiptafræðing eða hagfræðing hjá viðskiptaráðuneytinu eru einnig gjaldgengir í fagfélag stéttarinnar. Þeir einstaklingar sem útskrifast úr viðskipta- eða hagfræðideildum erlendra háskóla og hafa ekki próf úr sömu deildum íslensks háskóla þurfa að sækja um leyfi til nefndar á vegum viðskiptaráðuneytisins til að mega kalla sig viðskiptafræðing eða hagfræðing. Nefndin metur síðan hvort erlendu háskólarnir og námið sé sambærilegt við nám í íslenskum háskólum.
Það er mikilvægt fyrir þennan hóp sem hefur fullgilt próf erlendis frá að hafa leyfi skv. íslenskum lögum til að nota starfsheitið viðskipta- eða hagfræðingur eftir því sem við á. FVH mælir eindregið með því að fólk með prófgráður erlendis frá sæki um slíkt leyfi og aðstoðar væntanlega félagsmenn sína við að ganga frá umsókn. Hægt er að senda póst á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
eða hringja í síma 551 1317.
Lagasafn. Íslensk lög 1. janúar 2008. Útgáfa 135a.Lög um rétt manna til að kalla sig viðskiptafræðinga eða hagfræðinga 1981 nr. 27 25. maí
Ferill málsins á Alþingi. 1. gr. [Rétt til að kalla sig viðskiptafræðinga, hagfræðinga eða nota heiti sem felur í sér orðin viðskiptafræðingur eða hagfræðingur hafa þeir menn hér á landi sem fengið hafa til þess leyfi viðskiptaráðherra. Þeir sem lokið hafa BS- eða cand. oecon.-prófi úr viðskiptadeild eða BS-prófi úr hagfræðideild viðurkennds íslensks háskóla eða meistaranámi úr framangreindum deildum, sbr. lög nr. 136/1997, um háskóla, þurfa ekki slíkt leyfi ráðherra.]1) 2. gr. Engum má veita leyfi það, sem um ræðir í 1. gr., nema hann hafi lokið fullnaðarprófi í viðskiptafræði eða hagfræði við háskóla eða annan æðri skóla. 3. gr. Ráðherra sker úr ágreiningi, sem rísa kann um notkun starfsheita, sem fela í sér orðin viðskiptafræðingur eða hagfræðingur. 4. gr. Hver sem notar heiti, er leyfi þarf til samkvæmt lögum þessum, án þess að hafa fengið slíkt leyfi, skal sæta sektum. Sektirnar renna í ríkissjóð. 5. gr. Með mál út af brotum þessum skal fara að hætti opinberra mála. |
No current events.