ja_mageia

FVH
FVH er fagfélag háskólamenntaðs fólks á sviði viðskiptafræða og hagfræða. Félagsgjaldinu er stillt í hóf. Ef þú hefur útskrifast sem viðskiptafræðingur eða hagfræðingur frá viðurkenndum íslenskum háskóla ert þú gjaldgeng/ur í félagið.
  • Narrow screen resolution
  • Wide screen resolution
  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Kjarakönnun FVH
Skrifað af: admin Administrator   
Ert þú að semja um laun og kjör?

Kjarakönnun Félags viðskiptafræðinga og hagfræðinga

Félag viðskiptafræðinga og hagfræðinga (FVH) birtir nú niðurstöður úr kjarakönnun félagsins fyrir árið 2009 en félagið hefur gert kjarakannanir reglulega frá árinu 1979. Áður var könnunin gerð á tveggja ára fresti en frá árinu 2007 hefur hún verið framkvæmd árlega. Mikilvægi kjarakönnunar fyrir alla viðskipta- og hagfræðinga er mikið en hún er helsti gagnabanki upplýsinga um kjör þeirra og gagnast því bæði atvinnurekendum og launamönnum. Auk þess er afmarkað efni skoðað nánar í hverri kjarakönnun en í ár var athugun gerð á því hvort áhrifa efnahagsástandsins gætti á kjör og störf viðskipta- og hagfræðinga. Kjaranefnd Félags viðskiptafræðinga og hagfræðinga framkvæmdi kjarakönnunina og byggja niðurstöður á svörum 984 félagsmanna viðskiptafræðinga og hagfræðinga.

Heildarmánaðarlaun viðskipta- og hagfræðinga

kjarak_midgildi

Miðgildi1 heildarmánaðarlauna viðskipta- og hagfræðinga mælist nú 581 þúsund kr. sem er rúmlega 8% hækkun frá því á sama tíma í fyrra. Hækkun launa er nú talsvert meiri en í síðustu kjarakönnun en þá höfðu laun hækkað um tæplega 4% á milli ára.

Kynbundinn launamunur

Þrátt fyrir að konur mælist með lægri laun en karlar hækkuðu laun kvenna nú hlutfallslega meira en laun karla á milli ára. Mánaðarlaun kvenna hækkuðu um 9% og er miðgildi þeirra 547 þúsund kr. Laun karla hækkuðu um 6% og er miðgildi þeirra 636 þúsund kr. Þegar ekki er tekið tillit til annarra þátta mælast karlar með 16% hærri laun en konur. Þetta er þónokkur lækkun frá því árið 2008 en þá mældist óleiðréttur launamunur kynjanna um 20%. Þegar launamunur kynjanna er leiðréttur með tilliti til aldurs, fjölskyldustærðar, menntunar, starfsreynslu, starfsvettvangi og atvinnugeira mælist hann um 3,5%. Þetta er einnig töluverð lækkun frá því í fyrra en þá mældist leiðréttur launamunur 7,5%.

Áhrif efnahagsástandsins

Þrátt fyrir versnandi efnahagsforsendur á undanförnum mánuðum og vaxandi atvinnuleysi í þjóðfélaginu eru einungis tæplega 3% viðskipta- og hagfræðinga atvinnulausir samkvæmt niðurstöðum þessarar könnunar. Þó hafa 34% svarenda þurft að taka á sig tekjuskerðingu og telja 42% þátttakenda að mjög erfitt eða erfitt væri að finna sambærilegt starf og kjör og þeir hafa í dag.

Ítarlegri úttekt á niðurstöðum kjarakönnunarinnar verður sett á innra net Félags viðskiptafræðinga og hagfræðinga þar sem hún verður aðgengileg félagsmönnum, þeim að kostnaðarlausu.


Félagsmenn FVH sem greitt hafa árgjaldið geta skoðað ítarlegri niðurstöðurnar á innra netinu. Til þess þarf að vera innskráður og að hafa greitt árgjaldið. Ef þú hefur einhverjar fyrirspurnir ekki hika við að hafa samband: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Smelltu hér til að skoða Kjarahag og Kjarakönnun


Allar nánari upplýsingar í gegnum tölvupóst eða í síma 551-1317.

 

Blöð FVH


hagur_april_2010

kjarahagur_sept_2009_forsida

Innskráning



Samstarfsaðilar FVH