|
Íslenski tölvuleikjaframleiðandinn CCP býður félagsmönnum FVH að sækja fyrirtækið heim fimmtudaginn 10. desember n.k. Mæting er stundvíslega kl. 16:00 að Grandagarði 8, Reykjavík. Heimsóknin stendur til kl. 18:00.
CCP var kjörið þekkingarfyrirtæki ársins á Íslenska þekkingardeginum 2009, sem er ráðstefna og verðlaunaafhending sem FVH heldur í febrúar ár hvert. Léttar veitingar eru í boði CCP.
SKRÁNING HÉR! Ath. Jólaheimsóknin er eingöngu fyrir félagsmenn FVH.
|
|
Nánar...
|
|
FVH hélt hádegisverðarfund á Grand hótel miðvikudaginn 25. nóvember 2009, undir yfirskriftinni "Ísland endurunnið - er leið úr ruslinu?" Frummælendur voru Már Guðmundsson, seðlabankastjóri, Finnur Sveinbjörnsson, forstjóri Arion banka, Yngvi Harðarson, framkvæmdastjóri áhætturáðgjafar Askar Capital og Margrét Guðmundsdóttir, forstjóri Icepharma. Að loknum erindum sátu frummælendur í pallborði ásamt Þórði Friðjónssyni, forstjóra Nasdaq OMX á Íslandi og Hrafni Magnússyni, framkvæmdastjóra Landssamtaka lífeyrissjóða. Fundarstjóri var Helga Valfells, sérfræðingur fjárfestinga hjá Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins.
|
|
Nánar...
|
|
Hádegisverðarfundur FVH á Grand Hótel miðvikudaginn 25. nóvember kl. 12:00-13:30. Frummælendur verða Már Guðmundsson, Seðlabankastjóri, Finnur Sveinbjörnsson, forstjóri Arion banka, Margrét Guðmundsdóttir, forstjóri Icepharma og Yngvi Harðarson, framkvæmdastjóri áhætturáðgjafar Askar Capital. Að loknum erindum þeirra verða pallborðsumræður. Auk frummælenda munu þeir Þórður Friðjónsson, forstjóri Nasdaq OMX Ísland og Hrafn Magnússon, framkvæmdastjóri Landssamtaka Lífeyrissjóða taka þátt í pallborðsumræðum. Fundarstjóri: Helga Valfells, sérfræðingur fjárfestinga hjá Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins.
SKRÁNING HÉR!
|
|
Nánar...
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|