|
Félag viðskiptafræðinga og hagfræðinga stendur fyrir vali á fyrirtæki ársins og viðskiptafræðingi eða hagfræðingi ársins 2009. Félagið hefur sent út könnun í gegnum póstlista félagsins þar sem óskað er eftir tilnefningum til þekkingarverðlauna FVH. Óskað er eftir að tilnefnd séu þau fyrirtæki eða stofnun sem þykir hafa skarað fram úr og verið öðrum fyrirmynd. Einnig er óskað tilnefningar á viðskiptafræðingi eða hagfræðingi sem þykir hafa skarað fram úr á liðnu ári ásamt rökstuðningi í nokkrum orðum.
Dómnefnd fer yfir tilnefningar og birtir niðurstöður sínar á Íslenska þekkingardeginum sem haldinn verður 11. febrúar nk. Nánari upplýsingar um Íslenska þekkingardaginn verða sendar út síðar.
Hægt er að senda tilnefningar hér |
|
Félag viðskiptafræðinga og hagfræðinga óskar félagsmönnum sínum og velunnurum gleðilegra jóla og gæfuríks komandi árs. Bestu þakkir fyrir samveruna á árinu sem er að líða. Við vonumst eftir virkri þátttöku félagsmanna á nýju ári eins og verið hefur enda stefnir félagið að því að halda ótrauð áfram að bjóða upp á áhugaverða dagskrá.
Við hvetjum ykkur til að taka fimmtudaginn 11. febrúar 2010 frá, en eftir hádegið þann dag verður Íslenski þekkingardagurinn haldinn í 10. sinn. |
|
Félögum FVH var boðið í jólaheimsókn til CCP þann 10. desember 2009. Sú hefð hefur skapast hjá félaginu að sækja heim það fyrirtæki sem hlýtur þekkingarverðlaun FVH á Íslenska þekkingardeginum það árið. Heimsóknin tókst afar vel og voru félagsmenn mjög ánægðir með heimsóknina og upplýstari um það öfluga starf sem fram fer hjá CCP.
|
|
Nánar...
|